REITIR: Útboð á skuldabréfum 18. desember 2018


Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 18. desember næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokkunum REITIR151244, REITIR151124 og REITIR 22, sem allir eru veðtryggðir með fyrirliggjandi almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins. Hinir tveir fyrrnefndu eru verðtryggðir með jöfnum greiðslum en REITIR 22 er óverðtryggður með einni afborgun höfuðstóls eftir tæp fimm ár og vaxtagreiðslum á líftíma flokksins.

Fossar markaðir hf. hafa umsjón með útboðinu og kynnir það fyrir fjárfestum.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið er í hverjum flokki. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er, í heild eða að hluta, eða hafna þeim öllum. Stefnt er að samþykkt tilboða fyrir 2-3 milljarða króna að nafnverði. Áætlaður uppgjörsdagur er föstudagurinn 21. desember 2018.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfaflokka eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Nánari upplýsingar veita:

Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: einar@reitir.is, sími: 669 4416

og

Matei Manolescu, skuldabréfamiðlun Fossa markaða, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com, sími:  522 4008