Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Birting grunnlýsingar

Reitir fasteignafélag hf., kt. 711208-0700, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík, hefur birt grunnlýsingu í tengslum við útgáfuramma skuldabréfa. Grunnlýsingin er dagsett 17. desember 2018, staðfest af Fjármálaeftirlitinu, gefin út á íslensku og birt á vefsíðu Reita, www.reitir.is/fjarfestar. Grunnlýsinguna má nálgast á vefsíðunni og hjá útgefanda í höfuðstöðvum félagsins að Kringlunni 4-12, Reykjavík, á meðan hún er í gildi.

Nánari upplýsingar um Reiti fasteignafélag hf. og útgáfurammann má finna í framangreindri grunnlýsingu. Fossar markaðir hf. hafði umsjón með því ferli að fá grunnlýsinguna staðfesta hjá Fjármálaeftirlitinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669 4416.