Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 18. desember 2018

Lokuðu útboði Reita fasteignafélags hf. á skuldabréfum þann 18. desember 2018 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í áður útgefnum og skráðum flokkum, REITIR151244, REITIR151124 og REITIR 22. Tilgangur skuldabréfaútgáfu félagsins er eftir atvikum endurfjármögnun á hluta núverandi skulda félagsins, til fjármögnunar fasteignaþróunar og mögulegra fasteignakaupa sem og til rekstrarþarfa.

Alls bárust tilboð í flokkana þrjá að nafnvirði 5.070 milljóna króna. Var ákveðið að taka tilboðum að nafnvirði 1.590 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 3,50% í flokknum REITIR151244 og að nafnvirði 1.265 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 2,80% í flokknum REITIR151124. Tilboðum í flokkinn REITIR 22 var ekki tekið.

Heildarstærð ofangreindra flokka verður eftirfarandi:

Flokkur:  Áður útgefið:   Eftir útgáfu nú:
REITIR151244  35.815.200.000   37.405.200.000 
REITIR151124  7.085.000.000   8.350.000.000 
REITIR 22  1.155.000.000 1.155.000.000 

Gjalddagi áskrifta og afhending bréfa er fyrirhuguð föstudaginn 21. desember 2018 og óskað verður eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland sama dag.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669-4416.