Vilhelm Már Þorsteinsson ráðinn forstjóri Eimskips


Stjórn Eimskipafélags Íslands hefur ráðið Vilhelm Má Þorsteinsson í starf forstjóra félagsins. Hann hefur störf 24. janúar næstkomandi. Vilhelm hefur verið framkvæmdastjóri fyrirtækja og fjárfestasviðs Íslandsbanka hf. undanfarin ár.

Starf forstjóra var auglýst í byrjun desember á síðasta ári og naut Eimskip ráðgjafar Hagvangs við ráðninguna.

Vilhelm hefur starfað hjá Íslandsbanka í tuttugu ár og sinnt þar fjölbreyttum og krefjandi verkefnum, lengst af sem stjórnandi og setið í framkvæmdastjórn bankans. Í störfum sínum hefur hann öðlast víðtæka þekkingu og reynslu á fjármálamörkuðum og í fyrirtækjarekstri, sem mun nýtast vel í nýju starfi hjá Eimskip.

Vilhelm Már Þorsteinsson, verðandi forstjóri Eimskipafélags Íslands:
„Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt til að leiða Eimskip, sem er öflugt fyrirtæki í traustum rekstri. Þar bætist ég í góðan hóp starfsfólks og stjórnenda sem hafa mikla reynslu af flutningastarfsemi og ég hlakka til að starfa með. Ég hef átt frábær ár hjá Íslandsbanka þar sem starfsemin hefur tekið stöðugum breytingum í gegnum árin. Ég tek með mér mikilvæga reynslu úr þeim störfum þegar ég sný mér nú að nýjum verkefnum, sem fela meðal annars í sér að byggja upp starfsemi Eimskips á þeim trausta grunni sem lagður hefur verið.“

Baldvin Þorsteinsson, stjórnarformaður Eimskips:
„Með ráðningu Vilhelms fær Eimskipafélagið öflugan stjórnanda sem hefur sýnt að hann kann að leiða saman fólk til að vinna samhent að settu marki og ná árangri. Eftir störf sín hjá Íslandsbanka býr hann yfir innsýn og þekkingu á rekstri fyrirtækja í síbreytilegu og krefjandi umhverfi ásamt því að búa yfir nauðsynlegri framsýni til að leiða Eimskip fram á veginn.

Rétt er að taka fram við þetta tilefni að afar okkar Vilhelms voru bræður og feður okkar stofnuðu saman útgerðarfélagið Samherja ásamt föðurbróður Vilhelms fyrir um 35 árum síðan. Sem kunnugt er skildu leiðir feðra okkar í viðskiptum fyrir 20 árum. Frá þeim tíma hafa ekki verið fjárhagslegir- eða viðskiptalegir hagsmunir á milli okkar eða fjölskyldna okkar.

Einhugur var í stjórn Eimskips um ráðningu Vilhelms. Stjórnin býður hann velkominn, væntir mikils af honum og hlakkar til samstarfsins.“