Ársreikningur fagfjárfestasjóðsins REG 1 vegna ársins 2018


Fagfjárfestasjóðurinn REG 1 sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013.

  • Hagnaður 187 þús. króna varð á rekstri sjóðsins á árinu samkvæmt rekstrarreikningi.
  • Hrein eign sjóðsins nam 1.431 þús. króna samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Ársreikningurinn var endurskoðaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2018, efnahagi hans 31. desember 2018 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2018, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.

Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is

Nánari upplýsingar um ársreikning REG 1 veitir Flóki Halldórsson, í síma 444 7464.

Attachment


Attachments

REG 1 Ársreikningur_2018