Útboð verðtryggðra ríkisbréfa RIKS 26 0216


Fimmtudaginn 21. febrúar kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með tilboðsfyrirkomulagi.

Boðin verða til sölu  verðtryggð bréf í flokknum RIKS 26 0216. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði.

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði.

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt.

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu Lánamál ríkisins bjóða jafnvirði 10%, reiknað af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 mánudaginn 25. febrúar 2019. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 26. febrúar 2019.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635.

Viðhengi


Attachments

Frett_19.feb.2019 Utbodsskilmalar_21.feb.2019