REITIR: Útboð á skuldabréfum 26. febrúar 2019


Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 26. febrúar næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokkunum REITIR151244, REITIR151124 og REITIR 22, sem allir eru veðtryggðir með fyrirliggjandi almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins. Hinir tveir fyrrnefndu eru verðtryggðir með jöfnum greiðslum en REITIR 22 er óverðtryggður með einni afborgun höfuðstóls eftir tæp fjögur ár og vaxtagreiðslum á líftíma flokksins.

Fossar markaðir hf. hafa umsjón með útboðinu og kynnir það fyrir fjárfestum.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið er í hverjum flokki. Heildarstærð útboðsins getur verið allt að 7.145 milljónir kr. að nafnvirði. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er, í heild eða að hluta, eða hafna þeim öllum. Áætlaður uppgjörsdagur er föstudagurinn 1. mars 2019.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfaflokka eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Nánari upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: einar@reitir.is, sími: 699-4416, og Matei Manolescu, skuldabréfamiðlun Fossa markaða, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com, sími:  522 4008.