Kvika banki hf.: Breska Fjármálaeftirlitið samþykkir kaup Kviku banka hf. á GAMMA Capital Management hf.


Í dag, 6. mars 2019, samþykkti breska Fjármálaeftirlitið (e. Financial Conduct Authority) breytingu á eignarhaldi á GAMMA Capital Management Ltd., dótturfélagi GAMMA Capital Management hf. (GAMMA) í Bretlandi, en umrædd breyting leiðir af kaupum Kviku banka hf. (Kvika) á öllu GAMMA. 

Með vísan til tilkynningar Kviku fyrr í dag um samþykki Samkeppniseftirlitsins fyrir kaupunum, hafa nú öll skilyrði fyrir þeim verið uppfyllt og mun Kvika því ganga frá viðskiptunum í samræmi við kaupsamning. Einn seljenda, eigandi 3,85% hlutafjár undirritaði kaupsamninginn þó með fyrirvara, sem hann hefur ekki aflétt og mun Kvika því eignast 96,15% hlutafjár í GAMMA á þessu stigi.