Í 3. viku 2020 keypti Eimskip 345.925 eigin hluti fyrir kr. 65.950.601 samkvæmt neðangreindu:
Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð |
13.1.2020 | 10:05:22 | 69.185 | 192,5 | 13.318.113 |
14.1.2020 | 09:48:03 | 69.185 | 192,75 | 13.335.409 |
15.1.2020 | 09:33:53 | 69.185 | 190 | 13.145.150 |
16.1.2020 | 09:30:48 | 69.185 | 189 | 13.075.965 |
17.1.2020 | 09:48:16 | 69.185 | 189 | 13.075.965 |
Samtals | 345.925 | 65.950.601 |
Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í kauphöll þann 1. desember 2019.
Eimskip átti 4.605.879 eigin hluti fyrir viðskiptin, sem nam 2,46% af heildarhlutafé félagsins, og á að þeim loknum 4.951.804 hluti sem nemur 2,65% af heildarhlutafé félagsins.
Eimskip keypti í viku 3 samtals 345.925 hluti í félaginu. Kaupverð hinna keyptu hluta nam samtals kr. 65.950.601 sem samsvarar 13,19% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir skv. áætluninni. Eimskip hefur keypt samtals 1.913.725 hluti í félaginu að fjárhæð kr. 358.879.691 að markaðsvirði í endurkaupaáætluninni.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 3.125.000 hluta og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en kr. 500.000.000. Heimildin gildir til 24. janúar 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, markaðs- og samskiptastjóri í síma 825-3399 eða investors@eimskip.is