Veðskuldabréfasjóður ÍV: Umframgreiðsla VIV 14 1
Með vísan í lýsingu og skilmála skuldabréfaflokksins VIV 14 1 hefur Veðskuldabréfasjóður ÍV, sem útgefandi, ákveðið að nýta sér heimild til umframgreiðslu. Sjóðurinn mun því þriðjudaginn 29. desember 2020 greiða alls kr.500.000.000- til eigenda skuldabréfaflokksins. Greiðslan er tilkomin vegna afborgana og uppgreiðslna skuldabréfa í eigu sjóðsins.