Rekstur Kópavogsbæjar styrkist verulega milli ára 


18.4.2024 

Ársreikningur Kópavogsbæjar fyrir árið 2023 endurspeglar traustan rekstur sveitarfélagsins og hefur hann styrkst verulega frá fyrra ári. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði er 2,7 milljarðar en var 1,3 milljarður í fyrra.  Þá lækkar skuldaviðmið í 91% úr 95% og er langt undir lögbundnu hámarki sem er 150% samkvæmt sveitarstjórnarlögum.   

Nær engar lóðaúthlutanir voru á árinu með tilheyrandi tekjum. Í ár verður hins vegar úthlutað lóðum í Vatnsendahvarfi og fyrsta úthlutun lóða á næstunni. Stefnt er á að úthluta öllum lóðum í Vatnsendahvarfi á árinu sem mun skila sér inn í niðurstöðu ársreiknings 2024. 

„Rekstur Kópavogsbæjar styrkist umtalsvert milli ára sem endurspeglar ríka áherslu okkar á traustan rekstur. Þannig er afgangur af rekstri bæjarins fyrir fjármagnsliði 1,4 milljörðum hærri en í fyrra þrátt fyrir að lífeyrisskuldbinding hækki um 1,3 milljarð milli ára. Þá er verulegt styrkleikamerki að veltufé frá rekstri eru fimm milljarðar króna og eykst um tæpa tvo milljarða milli ára. Veltufé frá rekstri er algjör lykiltala í ársreikningi og er það svigrúm sem reksturinn gefur til að standa undir framkvæmdum og afborgunum lána.
Skuldastaða bæjarins er heilbrigð þrátt fyrir miklar fjárfestingar í leik- og grunnskólum og öðrum nauðsynlegum innviðum samfélagsins. Skuldahlutfall Kópavogsbæjar fer áfram lækkandi og er langt undir lögbundnu skuldaviðmiði.
Krefjandi rekstrarumhverfi, mikil verðbólga og háir vextir lita enn heildarniðurstöðu ársins og leiða til þess að fjármagnskostnaður er verulega umfram áætlun. Verkefnið nú sem endranær er að standa vörð um góðan rekstur þannig að áfram sé unnt að veita góða þjónustu en á sama tíma lækka skatta á bæjarbúa,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.

Ársreikningurinn var lagður fram í bæjarráði Kópavogs fimmtudaginn 18.apríl og vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs þann 23.apríl næstkomandi. 

Umfangsmiklar fjárfestingar  
  
Fjárfestingar og framkvæmdir í eignum bæjarins námu um 5,2 milljörðum króna. Viðamesta framkvæmdin er nýbygging Kársnesskóla við Skólagerði en kostnaður við hana nam um 1,1 milljarði 2024. Þá voru ýmis konar viðhaldsframkvæmdir á byggingum bæjarins, svo sem í Sundlaug Kópavogs, Kópavogsskóla og Kársnesskóla. Lóðir leik- og grunnskóla voru endurgerðar fyrir um 200 milljónir króna. Fjárfest var á skíðasvæðum fyrir um 200 milljónir og í gatnagerð fyrir rúmlega 600 milljónir.   

Skuldaviðmið lækkar áfram

Skuldaviðmið A- og B-hluta lækkar frá fyrra ári og er 91%, var 95% í árslok 2022. Skuldaviðmið A-hluta er 82%.  
  
Vaxtaberandi skuldir í ársreikningi fyrir 2023 eru ríflega 35 milljarðar.  Heildarskuldir og skuldbindingar Kópavogsbæjar hækka úr 54 í 58 milljarða eða rúm 7%. Þannig lækka skuldir að raunvirði ef tekið er tillit til verðbólgu sem var 8% ár árinu 2023.

Verðbólga var töluvert hærri en gert hafði verið ráð fyrir og eru verðbætur og lífeyrisskuldbindingar meginskýring á því að rekstrarniðurstaða samstæðunnar, A- og B-hluta var neikvæð um tæpar 800 milljónir, eða sem nemur 1,5% af tekjum.

Veltufé frá rekstri samstæðunnar, A- og B-hluta, hækkar í tæpa fimm milljarða úr rúmlega þremur milljörðum króna frá fyrra ári. Eigið fé samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi A- og B-hluta í árslok 2023 nam 38,3 milljörðum króna en eigið fé A hluta nam 18,4 milljörðum króna.  

Laun og launatengd gjöld ríflega helmingur af tekjum 

Laun og launatengd gjöld A-og B-hluta á árinu námu alls 25,8 milljörðum króna sem er 8,8% hækkun frá fyrra ári en allir kjarasamningar voru lausir hjá Kópavogsbæ á árinu. Launakostnaður vegur í dag um helming af rekstrartekjum.

Fjöldi á launaskrá í árslok var 3.090 en meðal stöðugildi á árinu voru 1.988. 

Íbúar Kópavogsbæjar þann 1. desember 2023 voru 40.570 samkvæmt Þjóðskrá Íslands og fjölgaði þeim um 777 frá fyrra ári eða um 1,95%.

Viðhengi



Attachments

1. Ársreikningur samstæða 2023