Að beiðni Fjármálaeftirlitsins til útgefenda skráðra hlutabréfa á Íslandi þá birtir Eimskip eftirfarandi greinagerð um áhrif óvenjulegs ástands á fjármálamörkðum á rekstur félagsins. Starfsemi Eimskip er fjölþjóðleg. Ekki hefur orðið nein veruleg röskun á starfsemi félagsins utan Íslands en ljóst er að ástandið á fjármálamarkaði hérlendis hefur veruleg áhrif á rekstur Eimskip innanlands og innflutning til landsins. Í kjölfar hruns bankakerfisins varð veruleg röskun á viðskiptum íslenskra fyrirtækja við útlönd sem hefur haft áhrif á innflutning til Íslands. Mikill samdráttur hefur verið í innflutningi síðustu vikur en félagið hafði þegar brugðist við samdrætti fyrr í haust með breytingum á siglingaleiðakerfum. Nú um miðjan nóvember voru gerðar enn frekari breytingar með því að fækka skipum niður í eitt á Ameríkuleið ásamt því að framkvæma ýmsar aðrar hagræðingaraðgerðir í rekstri. Útflutningur frá Íslandi hefur hins vegar aukist samanborið við fyrra ár. Mikil óvissa ríkir um stöðu margra fyrirtækja á Íslandi um þessar mundir sem getur haft bein eða óbein áhrif á rekstur Eimskip. Um 25% af starfsemi félagsins tengist Íslandi og því hefur samdráttur í flutningum til Íslands minni hlutfallsleg áhrif á heildarafkomu félagsins en ætla mætti. Eins og kunnugt er vinnur Eimskip nú að fjárhagslegri endurskipulagningu og stefnir að sölu á einingum sem tengjast frystigeymslustarfsemi félagsins. Söluferlið gengur samkvæmt settum markmiðum og óvissa á fjármálamörkuðum hefur ekki haft bein áhrif á ferlið að svo stöddu. Félagið hefur fengið mikilvægan stuðning frá skuldabréfaeigendum við að tryggja söluferlið, með því að fresta vaxtagreiðslum, eins og fram kom í tilkynningu til Kauphallar þann 23. október síðastliðinn. Félagið vinnur ennfremur að því að ná samkomulagi við aðra kröfuhafa um að fresta vaxtagreiðslum til að tryggja rekstur samstæðunnar og söluferli eigna. Félagið mun upplýsa um framgang þeirrar vinnu eftir því sem henni vindur fram. Möguleg óvissa um mat á eignum og skuldum félagsins snýr helst að þeim afleiðusamningum sem félagið gerði við Íslenskar lánastofnanir til að verja gengistengda fjármögnun sína og ekki liggur nákvæmlega fyrir hvernig farið verður með. Einnig ríkir áfram óvissa um svokallaða XL kröfu sem félagið tilkynnti sérstaklega um þann 7. október síðastliðinn. Unnið er að úrlausn þessara mála. Áhrif gengislækkunar íslensku krónunnar hefur hingað til haft óveruleg áhrif á rekstur félagsins enda tiltölulega lítill hluti samstæðunnar háður íslenskum krónum. Gjaldeyrisviðskipti með íslenskar krónur hafa hins vegar truflað greiðsluferli félagsins að einhverju leyti án þess þó að hafa haft nein áhrif á þjónustu félagsins enn sem komið er. Mjög erfitt er að meta framtíðarhorfur félagsins að svo stöddu í ljósi óvissu um þróun mála á fjármálamörkuðum. Félagið starfar á mörgum mörkuðum sem hingað til hafa þróast misjafnlega og því erfitt að segja nákvæmlega til um framtíðarhorfur félagsins í heild. Endurreisn bankakerfisins er mikilvæg fyrir starfsemi félagsins á Íslandi og að almenn viðskipti við útlönd komist í betra lag. Unnið er markvisst að fjárhagslegri endurskipulagningu til að tryggja áframhaldandi rekstur félagsins. Nánari upplýsingar veitir Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips
Áhrif óvenjulegs ástands á fjármálamörkuðum á rekstur Hf. Eimskipafélag Íslands
| Quelle: Hf. Eimskipafélag Íslands