Þann 21. mars síðastliðinn tók Fjármálaeftirlitið yfir valdheimildir hluthafafundar Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis og vék stjórninni frá þegar í stað. Fjármálaeftirlitið hefur skipað skilanefnd sem skal fara með öll málefni SPRON, þar á meðal að hafa umsjón með allri meðferð eigna SPRON. Þá hefur FME tekið ákvörðun um ráðstöfun eigna og skulda SPRON. Nýi Kaupþing banki hf. mun yfirtaka skuldbindingar bankans samkvæmt nánari lýsingu. Eftirtaldir aðilar hafa verið skipaðir í skilanefnd SPRON: Hlynur Jónsson, hdl. , formaður Davíð Arnar Einarsson, löggiltur endurskoðandi Feldís Lilja Óskarsdóttir, hdl. Guðrún Torfhildur Gísladóttir, löggiltur endurskoðandi Jóhann Pétursson, hdl. Guðmundur Hauksson forstjóri hefur einnig látið af störfum og hefur Ólafur Haraldsson tekið yfir starfsskyldur hans í umboði skilanefndar. Skilanefnd óskaði í framhaldinu eftir töku hlutabréfa félagsins úr viðskiptum NASDAQ OMX Iceland hf. sem hefur samþykkt beiðnina og voru hlutabréfin tekin úr viðskiptum þann 23. mars 2009.
Fjármálaeftirlitið tekur yfir starfsemi SPRON og hlutabréf félagsins tekin úr viðskiptum
| Quelle: SPRON