Uppgjör Stoða (FL Group hf.) fyrir árið 2008 mun ekki verða birt 30. apríl eins og áður hefur verið tilkynnt um. Á grundvelli 2. mgr. 56. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti er félögum sem eingöngu hafa skráð skuldabréf heimilt að birta ekki uppgjör í Kauphöll að því gefnu að lágmarksfjárhæð hvers skuldabréfs sé a.m.k. 50.000 EUR að nafnvirði á útgáfudegi bréfanna. Nánari upplýsingar veitir Júlíus Þorfinnsson í síma 591 4400.