Breyting á gengisviðmiðun við útreikning hlutabréfavísitalna Kauphallarinnar


Frá og með deginum í dag verður sú breyting á útreikningum hlutabréfavísitalna Kauphallarinnar að tilboð og viðskipti félaga sem skráð eru í erlendri mynt umreiknast ekki lengur í íslenskar krónur miðað við stundargengi. Miðað verður við gengi sem reiknast kl.l5:00 á evrópskum tíma (CET) og tekur þá þegar gildi og gildir til kl. 15:00 (CET) næsta dag.