Milestone fær auknar heimildir til að fara með virkan eignarhlut í Glitni


Fjármálaeftirlitið hefur fallist á ósk Milestone ehf. um heimild til að fara með allt að 25% eignarhlut í Glitni banka hf. í samræmi við reglur um virka eignarhluti í fjármálafyrirtækjum. Milestone og skyld félög fara nú með 20,75% eignarhlut í bankanum.


Upplýsingar veitir:
Guðmundur Ólason, forstjóri
Sími 414-1800