694 milljóna króna hagnaður hjá Frjálsa Útlánaaukning á árinu 49% Lykiltölur úr rekstri Í millj. ISK Rekstur: 1.1.2006-31.12.2006 1.1.2005-31.12.2005 Breyting 1.1.2004-31.12.2004 1.1.2003-31.12.2003 1.1.2002-31.12.2002 Hreinar vaxtatekjur 827 644 28,4% 882 724 699 Þjónustutekjur 103 107 -3,7% 67 63 38 Aðrar rekstrartekjur 415 425 -2,4% 124 42 126 Hreinar rekstrartekjur 1.345 1.176 14,4% 1.073 829 863 Laun og launatengd gjöld 237 217 9,2% 196 171 123 Annar almennur rekstrarkostnaður 173 158 9,5% 82 59 60 Afskriftir rekstrarfjármuna 27 22 22,7% 7 6 26 437 397 10,1% 285 236 209 Virðisrýrnun útlána 64 82 -22,0% 165 90 70 Hagnaður fyrir skatta 844 697 21,1% 623 503 584 Skattar (150) (123) 22,0% (112) 36 (101) Hagnaður eftir skatta 694 574 20,9% 511 539 483 Eignir: 31.12.2006 31.12.2005 Breyting 31.12.2004 31.12.2003 31.12.2002 Sjóður og kröfur á lánastofnanir 261 169 54,4% 313 77 474 Útlán og kröfur 53.036 35.513 49,3% 17.082 13.525 11.648 Rekstrarfjármunir 737 682 8,1% 37 41 40 Aðrar eignir 1.298 1.167 11,2% 350 60 4.612 Eignir Samtals 55.332 37.531 47,4% 17.782 13.703 16.774 Skuldir: Lántaka 50.183 33.348 50,5% 14.182 10.716 13.978 Aðrar skuldir 529 257 105,8% 159 57 405 Skuldir samtals 50.712 33.605 50,9% 14.341 10.773 14.383 Eigið fé: Eigið fé 4.620 3.926 17,7% 3.441 2.930 2.391 Eigið fé samtals 4.620 3.926 17,7% 3.441 2.930 2.391 Skuldir og eigið fé samtals 55.332 37.531 47,4% 17.782 13.703 16.774 Helstu kennitölur 1.1.2006-31.12.2006 1.1.2005-31.12.2005 Breyting 1.1.2004-31.12.2004 1.1.2003-31.12.2003 1.1.2002-31.12.2002 Kostnaðarhlutfall 32,5% 33,8% -3,8% 26,6% 28,5% 24,2% Vaxtamunur 1,8% 2,3% -21,7% 5,6% 4,8% 4,2% Heildaraukning útlána frá áramótum 49,3% 62,0% -20,5% 26,3% 16,1% 4,4% Arðsemi eigin fjár eftir skatta 17,7% 17,1% 3,5% 17,4% 22,6% 21,6% 31.12.2006 31.12.2005 Breyting 31.12.2004 31.12.2003 31.12.2002 Eiginfjárhlutfall (CAD) 13,3% 18,0% -26,1% 33,4% 26,3% 24,0% Afskriftareikningur útlána sem hlutfall af útlánum og veittum ábyrgðum 0,6% 1,0% -40,0% 2,6% 2,3% 2,3% Samkvæmt ársreikningi Frjálsa fjárfestingarbankans hf. fyrir árið 2006 nam hagnaður bankans 694 millj. kr. eftir skatta samanborið við 574 millj. kr. árið 2005 sem er aukning á hagnaði um 21%. Arðsemi eigin fjár var 18%. Hagnaður fyrir skatta nam 844 millj. kr. og nam því reiknaður tekjuskattur 150 millj. kr. Ársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegar reglur um gerð samstæðureikningsskila (IFRS). Hreinar vaxtatekjur námu 827 millj. kr. á árinu 2006 samanborið við 644 millj. kr. árið 2005 sem er 28% aukning á hreinum vaxtatekjum. Vaxtamunur var 1,8% á árinu 2006 samanborið við 2,3% árið 2005. Aðrar rekstrartekjur námu alls 518 millj. kr. á árinu 2006 og lækka um 2,5% frá árinu 2005. Kostnaðarhlutfall Frjálsa er nær óbreytt á milli ára en hlutfallið var 33% á árinu 2006. Önnur rekstrargjöld námu alls 437 millj. kr. samanborið við 397 millj. kr. 2005. Hlutfall annara rekstrargjalda af hreinum vaxtatekjum var 53% á árinu 2006 samaborið við 62% árið 2005. Niðurstaða efnahagsreiknings var 55.332 millj. kr. í loks ársins 2006 og hefur hækkað um 47% frá áramótum. Heildarútlán og kröfur á námu alls 53.036 millj. kr. í lok ársins 2006 hækkuðu um 49% frá áramótum Virðisrýrnun útlána nam 64 millj. kr. á árinu 2006 samanborið við 82 millj. kr. á árinu 2005. Vanskilahlutfall nam 0,55% af heildarútlánum í lok árs 2006. Afskriftareikningur útlána í lok ársins 2006 nam 332 millj. kr. sem er 0,6% sem hlutfall af heildarútlánum. Eigið fé í lok ársins nam 4.620 millj. kr. og hefur hækkað um 18% frá áramótum. Eiginfjárhlutfall (CAD) bankans í lok ársins 2006 var 13,3%. Lágmarkshlutfall samkvæmt lögum er 8,0%. Kristinn Bjarnason, framkvæmdastjóri Frjálsa. "Þessi afkoma er sú besta í sögu bankans. Mikill útlánavöxtur var á árinu 2006 líkt og árinu 2005. Það sem lagði grunn að þessari góðu afkomu var aukin umsvif sem skilaði sér í umtalsverðri hækkun á hreinum vaxtatekjum án þess að önnur rekstrargjöld hækkuðu að sama skapi. Útlánasafn bankans er traust en af útlánum bankans eru 99% tryggð með veð í fasteign. Vanskil eru í lág í sögulegu samhengi en hafa þó verið að aukast lítilega á síðustu mánuðum. Horfur fyrir árið 2007 eru góðar en búast má við að áfram verði umtalsverður útlánavöxtur og stækkun á efnahagsreikningi " Kristinn Bjarnason framkvæmdastjóri
Frjálsi fjárfestingarbankinn - Ársuppgjör 2006
| Source: Frjálsi fjárfestingarbankinn hf.