Actavis Group gerir samning við Kaupþing banka um viðskiptavakt


Actavis hf. hefur gert samning við Kaupþing banka hf. um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins.
Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands hf. 

Kaupþing banki hf. skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í Kauphöll Íslands hf., í Actavis hf. (ACT) að lágmarki 300.000 kr. að nafnvirði á gengi sem Kaupþing banki hf. ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem Kaupþing banki hf. er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 200.000.000,- að markaðsvirði.