Orkaveita Reykjavíkur - Ársuppgjör 2006


Helstu niðurstöður úr ársreikningi 2006

Allar tölur eru í millj. kr.		
	2006	2005
Rekstrarreikningur	1.1-31.12	1.1-31.12
		
Rekstrartekjur	18.101	14.728
Rekstrargjöld	(9.565)	(8.188)
Rekstrarhagn. f. afskr. (EBIDTA)	8.536	6.540
Afskriftir	(4.573)	(3.237)
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)	(9.466)	1.067
Hagnaður (tap) fyrir skatta	(5.503)	4.370
Tekjuskattur	3.779	0
Hagnaður fyrir hlutdeild minnihluta	(1.724)	4.370
Hlutdeild minnihluta í afkomu dótturfyrirt.	(31)	(12)
Hagnaður (tap) tímabilsins	(1.756)	4.358
		
Handbært fé frá rekstri	6.620	5.180
		
 	
		
Efnahagsreikningur	31.12.2006	31.12.2005
		
Fastafjármunir	133.150	84.435
Veltufjármunir	4.139	3.604
Eigið fé meirihlutaeigenda	66.555	48.213
Hlutdeild minnihluta	116	85
Lífeyrisskuldbinding	351	270
Langtímaskuldir	61.265	34.755
Skammtímaskuldir	9.003	4.717
		
Kennitölur:		
Veltufjárhlutfall	0,46	0,76
Eiginfjárhlutfall	48,6%	54,9%

Rekstrarreikningur Orkuveitu Reykjavíkur sýndi hagnað fyrir fjármagnsliði og skatta upp á 3.963 milljónir samanborið við 3.304 milljóna króna hagnað árið 2005. Tap eftir fjármagnsliði og skatta, rekstrarniðurstaða var 1.756 milljónir króna á árinu 2006 samanborið við 4.359 milljóna króna hagnað árið 2005. Helsta skýring á þessum mun er gengistap vegna langtímaskulda, samtals 8.141 milljónir króna. 

Rekstrartekjur ársins 2006 námu um 18.101 milljón króna en voru um 14.728 milljónir árið 2005. Helstu skýringar á mikilli veltuaukningu eru innkoma fráveitureksturs og aukning á orkuframleiðslu til stóriðju.

Hagnaður fyrirtækisins fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta, EBITDA, var 8.536 milljónir króna samanborið við 6.540 milljónir króna árið 2005.

Afskriftir varanlegra rekstrarfjármuna voru 4.573 milljónir króna árið 2006 en 3.237 milljónir króna árið 2005.

Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 9.466 milljónir króna árið 2006, en voru jákvæðir um 1.067 milljónir króna árið 2005.

Heildareignir 31. desember 2006 voru 137.289 milljónir króna en voru 88.039 milljónir króna 31. desember 2005.

Eigið fé 31. desember 2006 var 66.671 milljón króna en var 48.298 milljónir í 31. desember 2005.

Heildarskuldir 31. desember 2006 voru 70.618 milljónir króna en voru 39.741 milljón króna 31. desember 2005. 

Eiginfjárhlutfall var 48,6% í lok ársins 2006 en var 54,9% í lok 2005. 

Með nýjum lögum nr. 50/2005 um skattskyldu orkufyrirtækja verður fyrirtækið skattskylt í samræmi við 2. gr. Laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Lögin koma til framkvæmda við álagningu tekjuskatts á árinu 2007 vegna tekna á árinu 2006. Sá hluti starfsemi OR er lýtur að rekstri vatnsveitu og fráveitu verður þó áfram undanskilinn tekjuskatti. Reiknuð tekjuskattsinneign á árinu 2006 nam 3.779 milljónum króna.

Langtímaskuldir OR eru að stærstum hluta í erlendri mynt. Gengistap Orkuveitu Reykjavikur af langtímaskuldum nam 8.141 milljónum króna á árinu 2006.
 
Horfur:
Horfur eru góðar um rekstur Orkuveitu Reykjavíkur á árinu 2007. Umsvif fara vaxandi og fjárfestingar eru miklar. Stærsta einstaka verkefnið er bygging nýrrar virkjunar á Hellisheiði sem mun stórauka eigin orkuvinnslugetu fyrirtækisins. Í ársbyrjun 2007 sameinuðust Orkuveita Reykjavíkur og Hitaveita Rangæinga. 

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, í síma 516-6000.



Attachments

Orkuveita Reykjavikur - Arsuppgjor 2006.pdf