Actavis Group endurnýjar samning um viðskiptavakt við Landsbankann


Actavis Group hf. (ACT) hefur endurnýjað samning við Landsbanka Íslands hf. um viðskiptavakt  á útgefnum hlutabréfum félagsins og skráð eru í Kauphöll Íslands.  Tilgangur samningsins er efla viðskipti með hlutabréf ACT í Kauphöll Íslands í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. 

Landsbankinn mun daglega setja fram, í eigin reikning, kaup- og sölutilboð í hlutafé Actavis Group hf., að lágmarki kr. 300.000 að nafnvirði á gengi sem Landsbankinn ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. 

Tilboð skulu endurnýjuð innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu.
   
Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem Landsbankinn skuldbindur sig til að vera þátttakandi að dag hvern skal vera kr. 200.000.000,- að markaðsvirði.