Jeratún - Ársuppgjör 2006


Lykiltölur úr ársreikningi



Rekstrarreikningur	2006	2005
Tekjur		29.569	60.177
Rekstrargjöld		(5.444)	(4.420)
Afskriftir		(4.581)	(4.117)
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld		(53.158)	(42.625)
Hagnaður fyrir skatta		(33.614)	9.015
Tekjuskattur		1.722	(1.722)
Hagnaður ársins		(31.892)	7.293

Efnahagsreikningur
Fastafjármunir		465.240	436.382
Veltufjármunir		10.656	39.458
Eignir samtals		475.840	475.840

Eigið fé		(23.550)	8.343
Langtímaskuldir og skuldbindingar		444.646	443.959
Skammtímaskuldir		54.780	23.538
Eigið fé og skuldir samtals		499.446	475.840

Yfirlit um sjóðstreymi
Handbært fé frá (til) rekstri		22.291	(18.129)
Fjárfestingahreyfingar		(33.439)	(59.420)
Fjármögnunarhreyfingar		(18.441)	103.341
Handbært fé í árslok		1.089	30.679

Kennitölur
Veltufjárhlutfall		0,19	1,68
Eginfjárhlutfall		-4,95%	1,75%


Ársreikningur Jeratúns ehf. árið 2006.

Ársreikningur Jeratúns ehf. fyrir árið 2006 var staðfestur af stjórn og framkvæmdastjóra félagsins í gær, 12. mars 2007.

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga.

Rekstrartap félagsins á árinu 2006 var 31.892 þús. kr. og í lok þess var eigið fé neikvætt sem nam -23.550 þús. kr. samkvæmt ársreikningi. Ástæða fyrir þessu tapi má rekja til mikils  fjármagnskostnaðar, en síðasta ár var félaginu óvenju óhagstætt hvað fjármögnun varðar. Ákveðið var að mæta þessu tapi með útgáfu á nýu hlutafé að upphæð 32.000 þús. krónur og verður það hlutafé greitt inn á árinu 2007.

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok ársins námu eftirstöðvar lána 444,6 millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánanna. 

Björg Ágústsdóttir, lögfræðingur og fyrrverandi bæjarstjóri í Grundarfirði, er framkvæmdastjóri Jeratúns ehf. og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.


Attachments

Jeratun - 12 2006.pdf