Breyting á aðferðafræði við útreikning ICEX-15 cap vísitölunnar


Frá og með mánudeginum 2. apríl næstkomandi verður gerð breyting á aðferðafræði við útreikning ICEX-15 Cap vísitölunnar. Breytingin er á þá leið að við hlutafjárhækkanir og þegar hlutafé er fært niður breytist viðmiðunarfjöldi bréfa í vísitölunni í lok næsta föstudags á eftir þegar vægi félaga í ICEX-15 vísitölunni er skoðað og skert í stað samdægurs eins og nú er gert.