Flaga Group - Niðurstöður aðalfundar 10. apríl 2007


Þær tillögur sem lagðar voru fyrir aðalfund Flaga Group hf. þriðjudaginn 10.
apríl 2007 voru samþykktar samhljóða. 

1.	Eftirtaldir aðilar voru kjörnir í stjórn félagsins næsta starfsár:

Aðalstjórn:
Bogi Pálsson
Eggert Dagbjartsson
Erlendur Hjaltason
Hákon Sigurhansson
Sveinn Þór Stefánsson

Varamenn:
Ásmundur Tryggvason
Helgi Jóhannesson

2.	Eftirfarandi tillaga um endurskoðunarfélag var samþykkt:

KPMG endurskoðun hf., Símon Á. Gunnarsson og Eyvindur Albertsson fyrir þeirra
hönd. 

3.	Eftirfarandi tillaga um um meðferð hagnaðar:

Stjórn leggur til að ekki verði greiddur arður vegna ársins 2006.


4.	Eftirfarandi tillaga um laun sjtórnarmanna:

Lagt er til að laun stjórnarmanna verði ISK 600.000 fyrir árið 2007 og að laun
starfandi stjórnarformanns verði tvöföld sú upphæð. 


5.	Eftirfarandi tillaga um starfskjarastefnu var samþykkt:

Starfskjarastefna Flaga Group hf. 


1. gr. 	Markmið

Markmið starfskjarastefnu þessarar er að gera starf hjá Flaga Group hf. að
eftirsóknarverðum kosti fyrir starfsfólk og þar með tryggja félaginu stöðu í
fremstu röð á alþjóðavettvangi. Til að svo megi verða er nauðsynlegt að stjórn
félagsins sé kleift að bjóða samkeppnishæf laun og aðrar greiðslur sem tíðkast
hjá sambærilegum fyrirtækjum á alþjóðavettvangi. 

2. gr. 	Starfskjör stjórnarmanna

Stjórnarmönnum skal greidd föst mánaðarleg þóknun í samræmi við ákvörðun
aðalfundar ár hvert, svo sem kveðið er á um í 79. gr. laga um hlutafélög. Gerir
stjórnin tillögu um þóknunina fyrir komandi starfsár og skal í þeim efnum taka
mið af þeim tíma sem stjórnarmenn verja til starfans, þeirri ábyrgð sem á þeim
hvílir, og afkomu félagsins. 

Stjórnarmenn skulu fá fasta þóknun fyrir hvern fund sem þeir sitja í
undirnefndum stjórnar og skal sú þóknun ákveðin af aðalfundi félagsins. 

3. gr. 	Starfskjör forstjóra

Gera skal skriflega(n) ráðningarsamning(a) við forstjóra. Kjör hans/þeirra
skulu ávallt vera samkeppnishæf á alþjóðamarkaði. 

Fjárhæð grunnlauna og annarra greiðslna til forstjóra skal taka mið af menntun,
reynslu og fyrri störfum. Tilgreina skal önnur starfskjör í
ráðningarsamningnum, svo sem greiðslur í lífeyrissjóð, orlof, hlunnindi og
uppsagnarfrest. Heimilt er að semja við forstjóra um upphafsgreiðslu vegna
ráðningar hans/þeirra að félaginu. 

Við gerð ráðningarsamnings við forstjóra skal haft að leiðarljósi að ekki komi
til frekari greiðslna við starfslok en fram koma í ráðningarsamningi. Heimilt
er þó við sérstök skilyrði að mati stjórnar að gera sérstakan starfslokasamning
við starfslok forstjóra. 

4. gr. 	Umbun til æðstu stjórnenda

Forstjóra er heimilt að leggja fram tillögu fyrir stjórn félagsins um að umbuna
æðstu stjórnendum til viðbótar grunnlaunum í formi afhendingar hluta,
árangurstengdra greiðslna, hlutabréfa, kaupréttar, forkaupsréttar og annars
konar greiðslna sem tengdar eru hlutabréfum í félaginu eða þróun verðs á
hlutabréfum í félaginu, lífeyrissamninga og starfslokasamninga. 

Við ákvörðun um hvort veita skuli æðstu stjórnendum umbun til viðbótar
grunnlaunum skal taka mið af stöðu, ábyrgð, frammistöðu og framtíðarmöguleikum
viðkomandi stjórnanda innan félagsins. 

5. gr. 	Samþykkt starfskjarastefnu og fleira

Starfskjarastefna félagsins skal tekin til afgreiðslu á aðalfundi og skal hún
tekin til endurskoðunar ár hvert og borin undir aðalfund til samþykktar eða
synjunar. 

Er starfskjarastefnan bindandi fyrir stjórn félagsins að því er varðar ákvæði
um kaupréttarsamninga og hvers konar samninga eða greiðslur er fylgja þróun
verðs á hlutabréfum í félaginu, sbr. 2. mgr. 79. gr. a. hlutafélagalaga. Að
öðru leyti er starfskjarastefnan leiðbeinandi fyrir félagið og stjórn þess.
Stjórn félagsins skal færa til bókar í fundargerðarbók veigamikil frávik frá
starfskjarastefnunni og skulu þau frávik studd greinargóðum rökum. Gera skal
grein fyrir frávikum á næsta aðalfundi félagsins.