Milestone selur hlutabréf í Glitni


Milestone hefur gert samning við Kaupþing um að síðarnefnda félagið sölutryggi
sölu á hlutabréfum Milestone og tengdra aðila í Glitni. Uppgjör á
sölutryggingarsamningnum fer fram þann 16. apríl 2007. Eftir viðskiptin mun
Þáttur International ehf., sem er fjárhagslega tengt Milestone, eiga 7% hlut í
Glitni. Samkvæmt sölutryggingarsamningnum hefur Þáttur International samþykkt
að selja ekki hlutabréf í Glitni sem Þáttur International á til ótengdra aðila
í 12 mánuði. Ekki hefur verið endanlega gengið frá eignarhaldi á Þætti
International að svo stöddu.