OMX, sem er leiðandi aðili í kauphallarviðskiptum, Central-bankinn í Armeníu og ríkisstjórn Armeníu hafa undirritað viljayfirlýsingu um kaup OMX á Kauphöll og Verðbréfamiðstöð Armeníu. „Við teljum að með kaupum OMX á Kauphöllinni og Verðbréfamiðstöðinni í Armeníu fáum við tækifæri til að nýta reynslu okkar af þróun nýrra markaða í öðrum löndum. OMX mun efla armenska verðbréfamarkaðinn og stefna að því að auka skilvirkni hans, veltu og sýnileika. Enn fremur er það okkur metnaðarmál að reynslan í Armeníu verði OMX stökkpallur inn á aðra vaxandi fjármagnsmarkaði,“ segir Magnus Böcker, forstjóri OMX. „Við erum afar ánægð með að OMX ætli að taka þátt í að byggja upp fjármagnsmarkaðinn í Armeníu. Armenska ríkisstjórnin og Central-bankinn þar í landi taka fullan þátt í þessu verkefni og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að OMX takist að ná þeim markmiðum sem allir viðkomandi aðilar hafa sett sér,“ segir Serzh Sargsyan, forsætisráðherra lýðveldisins Armeníu. „Central-bankinn í Armeníu hefur verið í samstarfi við OMX í rúmt ár og við teljum að með þessum kaupum sé stigið mikilvægt skref í átt að þeim langtímamarkmiðum sem við höfum sett okkur varðandi fjármagnsmarkaðinn þar í landi. Við fögnum aukinni þátttöku OMX og áframhaldi á hinu jákvæða samstarfi,“ segir Tigran Sargsyan, bankastjóri Central-bankans í Armeníu. Með þeirri þekkingu sem OMX býr yfir vegna uppbyggingar sinnar á norrænu og baltnesku mörkuðum og þróun sinni á upplýsingatæknikerfum fyrir rúmlega 60 kauphallir í yfir 50 löndum er OMX í afar sterkri stöðu til að byggja upp verðbréfamarkaðinn í Armeníu. Armenski markaðurinn er hlutfallslega lítill núna en OMX er ljóst að um raunhæfa vaxtarmöguleika er að ræða sem byggjast á ýmsum þáttum, svo sem væntanlegum umbótum á eftirlaunakerfinu, lagabreytingum og eflingu verðbréfamarkaðarins sem komi til með að veita fyrirtækjum á svæðinu aukið fjármagn. Endanlegt samkomulag byggist á því að tiltekin skilyrði verði uppfyllt og að viðkomandi stjórnvöld í Armeníu sem og Central-bankinn veiti samþykki sitt. Nánari upplýsingar veitir: Niclas Lilja, fjölmiðlafulltrúi, OMX +46 8 405 63 95 UM OMX | OMX er leiðandi aðili í kauphallarviðskiptum. OMX Nordic Exchange veitir aðgang að u.þ.b. 80% af verðbréfamarkaði Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Nordic Exchange er ekki lögaðili heldur er um að ræða hugtak sem notað er í markaðslegum tilgangi. Hugtakið lýsir sameiginlegri þjónustu kauphallanna í Helsinki, Kaupmannahöfn og Stokkhólmi, Kauphallar Íslands og kauphallanna í Tallinn, Ríga og Vilníus. Samþætt upplýsingatæknikerfi OMX á öllu ferli viðskipta stuðla að skilvirkum verðbréfaviðskiptum í yfir 60 kauphöllum í rúmlega 50 löndum. OMX er í fjármálageira og er flokkað með stórum félögum í OMX Nordic Exchange (e. Nordic Large Cap). Nánari upplýsingar er að finna á slóðinni www.omxgroup.com