- 3 mánaða uppgjör 2007


Hagnaður 27 milljónir evra á fyrsta fjórðungi 

- Góður árangur í Þýskalandi og Bretlandi -


Helstu atriði - fyrsti ársfjórðungur 2007

•  Fyrsti ársfjórðungur er sá tekjuhæsti í sögu félagins og jukust tekjur um
11,9% í 382,7 milljónir evra (1F 2006: 341,9 milljónir evra) 

•  Undirliggjandi vöxtur (án tillits til fyrirtækjakaupa eða gengisáhrifa) nam
8,3% (1F 2006 pro forma: 353,5 milljónir evra), sem skýrist einkum af góðum
árangri í Bretlandi, Þýskalandi og Rússlandi 

•  Eftir tekjusviðum:

•  Pro forma sala í Mið- og Austur-Evrópu og Asíu jókst í 157,2 milljónir evra
(1F 2006 pro forma: 138,3 milljónir evra). Undirliggjandi vöxtur nam 13,6% 

•  Pro-forma tekjur í Norður-Ameríku námu 108,9 milljónum evra (1F 2006
pro-forma: 103,7 milljónir evra), og undirliggjandi vöxtur nam 5,0% 

•  Pro-forma sala í Vestur-Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku jókst um 9,9% í
79,7 milljón evra (1F 2006 pro forma: 72,6 milljónir evra). 

•  Sala til þriðja aðila dróst saman um 5,4% í 35,9 milljónir evra (1F 2006 pro
forma 37,9 milljónir evra) 
	
•  EBITDA hlutfall nam 20,7% í fjórðungnum, án tillits til dreifingar lyfja í
Mið og Austur Evrópu var EBITDA framlegðin 23,1% 

•  Hagnaður dróst saman um 15,3% í 27 milljónir evra, og undirliggjandi
hagnaður (að frátöldu afskriftum á yfirverði vegna fyrirtækjakaupa) dróst saman
um 7,8% og var 32,4 milljónir evra. Lækkun hagnaðar skýrist að mestu leiti af
hærri afskriftum og auknum vaxtakostnaði samstæðunnar vegna ýmissa
fjárfestingarverkefna. 

•  Þynntur undirliggjandi hagnaður á hlut dróst saman um 3,6% og var 0,00660
evrur á hlut 

•  Alls voru markaðssett 80 samheitalyf (48 einstök lyf), þar á meðal fékkst
180 daga einkasöluréttur á Ranitidine í Bandaríkjunum 

•  Gerðir voru samningar við stór þýsk sjúkrasamlög, sem styðja við vöxt á þeim 
markaði 


Róbert Wessman, forstjóri Actavis um uppgjörið:

„Árið fer vel af stað hjá okkur og ánægjulegt að sjá góðan viðsnúning á
mörkuðum okkar í Þýskalandi og Bretlandi. Þá var árangur okkar áfram góður í
Rússlandi og Bandaríkjunum og vöxtur samstæðunnar og framlegð í samræmi við
útgefin markmið. Á síðari hluta ársins munum við sjá aukinn fjölda
markaðssetninga nýrra lyfja og framlegð og vöxtur mun styrkjast eftir því sem
líður á árið. Samhliða góðum undirliggjandi vexti munum við halda áfram að
skoða áhugaverð tækifæri til vaxtar og framfylgja stefnu okkar um að koma
Actavis í enn sterkari stöðu á heimsmarkaði”

Attachments

actavisgroup-q1_2007-financialstatement.pdf actavis - frettatilkynninq1 2007.pdf