- Actavis staðfestir móttöku yfirtökutilboðs


Actavis staðfestir að félaginu hefur borist tilkynning frá Novator, félags í
eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, stjórnarformanns Actavis þess efnis að
félagið hyggist gera hluthöfum Actavis frjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé í
A flokki. Félög tengd Novator eiga nú þegar sem nemur um 38,5% af hlutafé
félagsins í A-flokki.  Markmið Novator er að eignast allt hlutafé félagsins. 

Tilboðið verður lagt fram í evrum og hljóðar upp á 0,98 evrur á hlut (sem
jafngildir 85,23 krónum á hlut, miðað við opinbert viðmiðunargengi Seðlabanka
Íslands þann 9. maí sl.). 

Stjórn Actavis mun fjalla um málið eins fljótt og auðið er og senda frá sér
tilkynningu.