- Novator leggur fram frjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé félagsins


Novator, félag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur ákveðið að leggja fram
frjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Actavis Group hf. í A-flokki. Félög tengd
Novator eiga nú þegar sem nemur um 38,5% af hlutafé félagsins í A-flokki og er
Björgólfur Thor jafnframt stjórnarformaður þess. Markmið Novator er að eignast
allt hlutafé félagsins. 

Tilboðið verður gert af hálfu óstofnaðs eignarhaldsfélags og verður lagt fram í
evrum. Tilboðsverð verður EUR 0,98 á hlut, sem miðað við opinbert
viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands fyrir evru þann 9. maí sl. og jafngildir
85,23 krónum. Verð þetta er 9% hærra en lokagengi Actavis Group hf. í OMX
kauphöllinni í Reykjavík þann 9. maí sl. Er þetta hæsta gengi, sem boðið hefur
verið fyrir hlutabréf í félaginu og ríflega 21% hærra en meðaltals lokagengi
síðastliðinna sex mánaða. Það er mat Novator að verðið endurspegli á mjög
sanngjarnan hátt raunvirði félagsins á þessum tíma, einkum og sér í lagi í
samanburði við önnur samheitalyfjafyrirtæki á markaði og nýlegar yfirtökur í
geiranum. 

Á síðustu misserum hafa átt sér stað miklar sviptingar í lyfjageiranum.
Samþjöppun er hröð, barátta um leiðandi stöðu á lykilmörkuðum afar hörð og
verðsamkeppni fer sífellt vaxandi. Í slíku umhverfi telur Novator mikilvægt
fyrir árangursríka framtíðaruppbyggingu Actavis að afskrá félagið af markaði
svo það búi ekki lengur við þær ríku kröfur og skyldur, sem lagðar eru á skráð
félög, þ.m.t. um upplýsingagjöf. Novator mun því óska eftir afskráningu
félagsins úr OMX kauphöllinni eins fljótt og auðið er. 

Novator hefur í hyggju að fjármagna umtalsverðan hluta kaupverðs með lánsfé og
því ljóst að Actavis verður á samstæðugrundvelli verulega skuldsett að
yfirtökunni lokinni. Novator mun beita sér fyrir enn aukinni áhættusækni í
rekstri félagsins, fækka í stjórn þess og birta aðeins á opinberum vettvangi
þær upplýsingar, sem almennt er krafist af óskráðum félögum. Það er mat Novator
að sú aukna áhætta, sem fylgir slíkri skuldsetningu og stefnu, sé ekki heppileg
fyrir almenna fjárfesta og því rétt að gefa öðrum fjárfestum tækifæri til
útgöngu áður en að slíkum breytingum kemur.

Novator vonast til að stjórnendur og starfsfólk Actavis bregðist vel við
fyrirhugaðri yfirtöku og hlakkar til áframhaldandi samstarfs við þennan öfluga
hóp. 

Tilboð til hluthafa félagsins í A-flokki ásamt skilmálum verður lagt fram með
formlegum hætti innan skamms, í samræmi við ákvæði laga nr. 33/2003 um
verðbréfaviðskipti um valfrjáls yfirtökutilboð.

Attachments

tilkynning fra novator_actavis_final.pdf