Stjórn Actavis staðfestir að tilkynning um væntanlegt frjálst yfirtökutilboð Novator, félags í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, stjórnarformanns Actavis hefur nú verið tekið til skoðunar. Hluti af stjórn félagsins mun framkvæma formlegt mat á tilboðinu þegar það hefur verið kynnt hluthöfum og hefur stjórnarfundur nú þegar verið haldinn. Ákveðið hefur verið að leita til alþjóðlegs aðila um að gera faglegt og óháð mat á tilboðinu, sem stjórnarmenn munu nýta til grundvallar í mati sínu til hluthafa. Stefnt verður að því að matið verði unnið eins fljótt og kostur er, eftir að hluthöfum hefur verið birt tilboð Novator og sú niðurstaða kynnt hluthöfum. Stjórn Actavis skipa þeir Björgólfur Thor Björgolfsson, Sindri Sindrason, Magnús Þorsteinsson, Andri Sveinsson og Róbert Wessman. Baldur Guðnason er varamaður. Björgólfur Thor Björgólfsson stjórnarformaður, Andri Sveinsson og Róbert Wessman hafa óskað eftir því að taka ekki þátt í því mati sem stjórnin mun gera á tilboðinu og Baldur Guðnason, skipaður varamaður, hefur nú tekið sæti í stjórninni. Þeir stjórnarmenn sem munu því fjalla um málið og taka afstöðu til þess, eru Sindri Sindrason, Magnús Þorsteinsson og Baldur Guðnason. Frekari upplýsingar veitir Halldor Kristmannsson Innri og ytri samskipti Sími: 550 3300 / 840 3425 hkristmannsson@actavis.com