- 24. maí kl. 16:00


Aðalfundur Mosaic Fashions hf verður haldinn á Nordica hótelinu við
Suðurlandsbraut fimmtudaginn 24. maí kl. 16.00. 

Dagskrá fundarins skv. 13. gr. samþykkta félagsins verður sem hér segir:
 
a)  Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliði starfsár.
b)  Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt endurskoðunarskýrslu
skal lagður fram til staðfestingar. 
c)  Kosning stjórnar.
d)  Kosning endurskoðenda.
e)  Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
f)  Ákvörðun um hvernig fara skuli með tap eða hagnað félags á reikningsárinu
g)  Önnur mál sem löglega eru upp borin.

Fundurinn mun fara fram á ensku. 

Ársskýrsla félagsins verður aðgengileg á heimasíðu félagsins,
www.mosaic-fashions.co.uk, frá og með þriðjudeginum 22. maí 2007. 

Nánari upplýsingar veitir Jess Wilks, tengiliður félagsins við fjárfesta, í
síma 00 44 207 7452 1122