- Róbert Wessman, forstjóri Actavis Group hf. og Sindri Sindrason, stjórnarmaður Actavis Group hf. selja inn í tilboð Novator


Reykjavík, 29. júní, 2007.  
Róbert Wessman, forstjóri Actavis Group hf., hefur tilkynnt Novator að hann
samþykki sölu á öllum hlutum í eigu hans og tengdra félaga til Novator samkvæmt
þeim tilboðsskilmálum sem fram koma í tilboði Novator.  Alls er um að ræða
136.732.633 hluti að nafnverði. 

Sindri Sindrason, stjórnarmaður í Actavis Group hf., hefur einnig tilkynnt
Novator að hann samþykki sölu á öllum hlutum í eigu hans og tengdra félaga til
Novator samkvæmt þeim tilboðsskilmálum sem fram koma í tilboði Novator.  Alls
er um að ræða 21.658.059 hluti að nafnverði. 

Tilboðsverð Novator er EUR 1,075 pr. hlut og eru fyrirvarar samkvæmt tilboði
Novator í gildi þannig að sala hlutabréfanna hefur ekki átt sér stað.