- Framlenging yfirtökutilboðs Novators í Actavis Group hf.


Novator eignarhaldsfélag ehf. hefur ákveðið að framlengja yfirtökutilboð sitt í
hlutafé Actavis Group hf. Gildir yfirtökutilboðið nú til kl. 16:00
miðvikudaginn 18. júlí 2007. 
 
Í ljósi þess hversu vel hluthafar í Actavis Group hf. hafa tekið
yfirtökutilboði Novators í Actavis og þess hversu nálægt Novator er markmiði
sínu um 90% samþykki hluthafa, er yfirtökutilboðið framlengt til þess að gefa
hluthöfum lengri frest til þess að ganga frá sölu nú yfir sumarleyfistímann. 
 
Framlenging á gildistíma yfirtökutilboðsins hefur engin áhrif á þá sem þegar
hafa samþykkt tilboðið og þurfa því þeir hluthafar sem þegar hafa skilað inn
samþykki sínu ekki að aðhafast neitt. 
 
Framlenging á gildistímanum felur ekki í sér breytingar á yfirtökutilboði
Novators eignarhaldsfélags ehf. í Actavis Group hf. Uppgjör samkvæmt tilboðinu
framlengist samhliða til 23. júlí 2007.