Actavis Group hf. (“ACT”) hefur í dag greitt upp kaupréttarsamninga framkvæmdastjóra og annarra starfsmanna félagsins. Kaupréttarsamningarnir tóku til hluta í félaginu samtals að nafnverði 29.996.444 krónur. Actavis hefur greitt þessum starfsmönnum sínum mismuninn á kaupverði í kaupréttarsamningum og yfirtökutilboðsverði Novator í alla hluti félagsins, þ.e. 1,075 EUR á hlut. Vegna þessa námu greiðslur til framkvæmdastjóra félagsins samtals EUR 6.148.238 og greiðslur til annarra starfsmanna samtals EUR 10.430.656 Sundurliðun á greiðslum til framkvæmdastjóra félagsins samkvæmt framansögðu er sem hér segir: Sjá viðhengi. Nánari upplýsingar veitir: Árni Harðarson, í síma 550-3300/840 7462 netfang: ahardarson@actavis.com