Hagnaður Actavis 29 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi — Góð afkoma í Austur- og Vestur-Evrópu Helstu atriði Tekjur á öðrum ársfjórðungi hækkuðu um 4,1% í 378,9 milljónir evra (2F 2006: 364,1 milljónir evra) og um 7,9% í 761,5 milljónir evra (1H 2006 705,9 milljónir evra) á fyrstu 6 mánuðum ársins, einkum vegna góðrar afkomu í Austur og Vestur Evrópu. Undirliggjandi tekjuvöxtur í fjórðungnum nam 4,8% (2F 2006 pro forma: 361,6 milljónir evra) og um 7,1% á fyrri helmingi ársins (1H 2006 pro forma: 711,1 milljónir evra). o Sala í Mið- og Austur-Evrópu og Asíu jókst í 157,1 milljónir evra (2F 2006 proforma: 144,8 milljónir evra). Undirliggjandi vöxtur nam 8,5% í fjórðungnum og 12,6% á fyrstu 6 mánuðum ársins. o Salan í Vestur-Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku jókst um 23,0% í 86,3 milljónir evra (2F 2006 pro forma 70,2 milljónir evra). Undirliggjandi vöxtur á fyrstu 6 mánuðunum nam 16,3%. o Sala í Norður-Ameríku nam 96,3 milljónum evra (2F 2006 pro forma 111,4 milljónir evra), sem er í samræmi við væntingar stjórnenda. Þetta er 13,5% lækkun frá öðrum fjórðungi 2006, sem var sérlega sterkur fjórðungur á svæðinu. Á fyrri helmingi ársins drógust tekjur á markaðnum saman um 4,6%. o Sala til þriðja aðila jókst um 6,7 % í 35,7 milljónir evra (2F 2006 pro forma 33,4 milljónir evra) í fjórðungnum. Á fyrri helmingi ársins eru tekjur sambærilegar við fyrra ár. • Góð EBITDA framlegð var í fjórðungnum en hún nam 22,2% og var 21,5% á fyrri helmingi ársins. • Hagnaður eftir skatta var 29,3 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi og lækkaði um 2,6% frá fyrra ári, en hagnaður nam 56,3 milljónum evra á fyrri helmingi ársins. • Undirliggjandi þynntur hagnaður á hlut var 0,00680 (2F 2006 0,00787) á öðrum fjórðungi og 0,01340 (1H 2006 0,01502) á fyrri helmingi ársins. • Alls voru markaðssett 145 samheitalyf (84 einstök lyf) í fjórðungnum og alls 225 á fyrri helmingi ársins • Fjárfestingarfélagið Novator gerði yfirtökutilboð til hluthafa Actavis og tryggði sér 99,66% hlutafjár. Stjórn Actavis óskaði í kjölfarið eftir afskráningu úr OMX kauphöllinni á Íslandi. Actavis President & CEO, Robert Wessman, commented: “This has been another strong quarter for Actavis, with a particularly good performance in our European business. In the US, we expect to launch a number of new products in the second half and we now have a record number of pending ANDAs, supporting our growth in the market as we move into next year. Our core markets continue to perform well and we are on track to achieve our financial goals for the year. “The senior management team at Actavis looks forward, as a private company, to continue the Company's strong track record of growth. With one of the strongest product pipelines in the industry and diverse geographic reach, we are confident that Actavis is well placed to continue to grow its share in the key European and US markets.”