OMX Nordic Exhcange Iceland hf. hefur samþykkt framkomna beiðni um afskráningu hlutabréfa Actavis Group hf. af Aðallista Kauphallarinnar. Félagið uppfyllir ekki skilyrði skráningar um dreifingu hlutafjár, sjá tilkynningu dags. 26 júlí sl. Félagið verður afskráð eftir lokun viðskipta mánudaginn 13. ágúst 2007 með vísan til ákvæðis 7.1 í Skráningarskilyrðum Nordic Exchange.