Hagnaður ríflega tvöfaldaðist - arðsemi eigin fjár 59,5% Icebank skilaði 4.198 m.kr. hagnaði eftir skatta á fyrri helmingi ársins 2007, þar af skilaði annar ársfjórðungur 2.399 m.kr. eftir skatta. Aukning hagnaðar á milli ára er 138,6% fyrir fyrri hluta ársins. Í ár birtir bankinn í fyrsta sinn ársfjórðungsleg uppgjör sem eru könnuð af endurskoðendum bankans. Þar sem uppgjör síðasta árs voru aðeins birt hálfsárslega verður ekki gerður samanburður á milli ársfjórðunga. Árshlutareikningurinn er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Annar ársfjórðungur 2007 • Hagnaður nam 2.399 m.kr. eftir skatta á öðrum ársfjórðungi 2007 borið saman við 1.798 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi. • Hagnaður á hvern hlut dróst lítið eitt saman frá fyrsta ársfjórðungi, úr 2,40 kr. í 2,10 kr. • Arðsemi eigin fjár var 63,9% samanborið við 55,7% á fyrsta ársfjórðungi 2007. • Kostnaðarhlutfall stendur því sem næst í stað og er nú 10,0%, sem er með því lægsta sem gerist. • Vaxtamunur var 2,2 % samanborið við 2,1% á fyrsta ársfjórðungi 2007. Fyrri helmingur ársins 2007 • Hagnaður nam 4.198 m.kr. eftir skatta á fyrri helmingi ársins 2007 borið saman við 1.759 m.kr. á sama tímabili í fyrra. • Hagnaður á hvern hlut var 4,44 kr. samanborið við 2,75 kr. á sama tíma í fyrra. • Arðsemi eigin fjár var 59,5% samanborið við 50,8% á fyrri hluta 2006. • Kostnaðarhlutfall var 10,0% miðað við 15,8% á sama tímabili árið 2006. • Vaxtamunur jókst úr 1,8% á fyrri helmingi síðasta árs í 2,2% nú. • Fjármögnun bankans hefur gengið vel. Leitað var til erlendra banka með lánsfé í byrjun árs og fékkst meira lánsfé en óskað var eftir og á góðum kjörum. • Starfsfólki bankans hefur fjölgað um 40,4% á síðustu 12 mánuðum. Fjölgunin hefur verið á öllum sviðum bankans, mest í tekjuskapandi störfum. Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri: „Það er ánægjulegt að sjá hvað rekstur og afkoma bankans standa styrkum fótum. Hagnaður hefur aldrei verið meiri á einum árshelmingi og arðsemi eigin fjár heldur áfram að vera á bilinu 50-60% sem er afar góður árangur. Í nóvember sl. var kynnt ný framtíðarsýn fyrir bankann sem felur í sér miklar áherslubreytingar. Samhliða fjölþættu innra uppbyggingarstarfi hefur markvisst verið unnið að því að festa nýja ímynd og áherslur bankans í sessi út á við og auka viðskiptin. Þessa gætir einkum í lánastarfsemi bankans og gjaldeyris- og afleiðuviðskiptum. Þannig voru vaxtatekjur á fyrri hluta ársins nánast tvöfalt hærri en á sama tímabili í fyrra og tvöfalt hærri en allur rekstrarkostnaður í bankanum. Þetta sýnir glöggt hvað undirliggjandi starfsemi bankans er sterk. Mikilvægt er að viðhalda þessum árangri og bæta hann enn frekar samhliða því sem auka þarf fjölbreytni í starfsemi bankans, fyrst og fremst með uppbyggingu erlendis. Góð afkoma og sterk fjárhagsstaða bankans leggja traustan grunn að slíkri sókn.“ Nánari upplýsingar veita: Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Icebank, í síma 540 4000. Hafdís Karlsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, í síma 540 4000. Um Icebank Icebank er viðskiptabanki sem leggur áherslu á heildsölu- og fjárfestingarbankastarfsemi gagnvart sparisjóðum, innlendum sem erlendum fjármálafyrirtækjum og öðrum stærri aðilum. Hann er í eigu allra sparisjóða í landinu.