- Niðurstöður hins valfrjálsa skilyrta tilboðs í alla hluti félagsins KEOPS A/S


Þann 29. júní 2007 auglýsti Fasteignafélagið Stoðir hf. (“Stoðir”) þá ætlun
sína að leggja fram valfrjálst skilyrt tilboð (“tilboðið”) til allra hluthafa
Keops A/S (“Keops”). Þann 27. júlí 2007 var tilboðsskjalið lagt fram. 

Tilboðstími rann út þann 31. ágúst 2007 kl. 20.00 CET, og á þeim tíma höfðu
Stoðir fengið samþykki frá hluthöfum samtals 176.053.918 hluta í Keops, hver að
nafnvirði DKK 1, sem samsvarar 96,72% hluta og atkvæðisréttar í Keops (þar með
eru taldir eigin hlutir Keops og kaupréttir). 

Þeim hlutum sem samþykki fengust fyrir má greina í tvennt. Annars vegar er um
að ræða eigendur 53.119.741 Keops hluta (30,2%) sem kusu að samþykkja
peningagreiðslu sem endurgjald, og hins vegar eigendur 122.934.177 Keops hluta
(69,8%) sem kusu að fá hluti í Stoðum sem endurgjald. Samtals mun verða gefið
út nýtt hlutafé í Stoðum að fjárhæð 2.364.195.277 kr. til hinna rúmlega 350
hluthafa Keops sem valið hafa hluti í Stoðum sem endurgjald fyrir hluti sína. 

Stoðir álíta að öll skilyrði tilboðsins hafi verið uppfyllt, og staðfestir að
félagið muni nú ljúka tilboðsferlinu. Gert er ráð fyrir að gengið verði frá
greiðslum þann 6. september með milligöngu Verðbréfaskráningar Íslands. 

Stoðir hyggjast nú hefja innlausnarferli til að eignast þá hluti sem eftir
standa í eigu annarra í Keops, og munu Stoðir á næstu dögum óska eftir því við
stjórn Keops að hún boði til hluthafafundar, meðal annars til að fá samþykki
hluthafa Keops til þess að hefja ferli til afskráningar hluta í Keops úr
kauphöll OMX í Kaupmannahöfn. 

Fasteignafélagið Stoðir hf.

Nánari upplýsingar veitir:
Skarphéðinn B. Steinarsson, forstjóri
Símanúmer: +354-660-0063
Fasteignafélagið Stoðir hf.
Kringlunni 4-12
103 Reykjavík
Ísland