- BYR sparisjóður hefur keypt rekstur Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna, VSP hf


Byr hefur gert hluthöfum Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna hf. (VSP) tilboð um
kaup á rekstri félagsins og samþykkti hluthafafundur VSP að taka tilboðinu. 
Kaupverðið er trúnaðarmál. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki
Samkeppnis- og Fjármálaeftirlits. 

Starfsmenn Byrs og VSP munu hafa samband við viðskiptavini VSP á næstunni.  

Nánari upplýsingar veita sparisjóðsstjórar í síma 575 4000

Ragnar Z. Guðjónsson
Magnús Æ. Magnússon