Ársuppgjör SPRON verður birt þann 6. febrúar næstkomandi eftir lokun markaða. Kynningarfundur vegna uppgjörsins verður þann 7. febrúar á Grand Hótel í Gullteig og hefst fundurinn kl. 8:30. Guðmundur Hauksson forstjóri og Valgeir M. Baldursson framkvæmdastjóri fjármálasviðs munu gera grein fyrir uppgjörinu og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á íslensku og verður varpað beint á heimasíðu félagsins á www.spron.is