HAGNAÐUR MILESTONE 21,3 MILLJARÐAR ÁRIÐ 2007 MEGINATRIÐI ÁRSREIKNINGS 2007 ● Hagnaður eftir skatta nam 21,3 milljörðum króna árið 2007. ● Heildartekjur félagsins voru 56 milljarðar á árinu. ● Heildareignir Milestone voru 392 milljarðar í árslok 2007. ● Eigið fé nam 69,5 milljörðum króna þann 31. desember 2007. ● Arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 48,8%. ● Eiginfjárhlutfall samstæðu var 18% og eiginfjárhlutfall móðurfélags var 73% í árslok 2007. ● Í lok tímabilsins var samstæðan með jafnvirði 379 milljarða króna í eignastýringu. ● Allar skráðar eignir Milestone eru færðar á markaðsvirði í bókum félagsins. 4 ÁRSFJÓRÐUNGUR 2007 ● Tap á fjórða ársfjórðungi nam 5,8 milljörðum eftir skatta. ● Milestone og dótturfélög eiga samtals 10,2% hlut í sænska fjárfestingabankanum Carnegie sem er skráður í OMX Nordic Exchange í Stokkhólmi. ● Félög innan samstæðu Milestone eru stærstu hluthafar í Carnegie og Anders Fällman, forstjóri dótturfélags Milestone, var kosinn stjórnarformaður Carnegie á fjórða ársfjórðungi. ● Milestone tilkynnti í desember um kaup á 75,9% hlut í KIB bankanum í Makedóníu. ÞRÓUN FRÁ ÁRSLOKUM 2007 ● Stjórn Milestone hefur ákveðið, með fyrirvara um samþykki fjármálaeftirlits í Svíþjóð og á Íslandi, að færa allar íslenskar eignir félagsins undir sænsku fjármálasamstæðuna Invik, sem verður áfram dótturfélag Milestone. ● Eftir eignafærsluna á árinu 2008 munu öll fyrirtæki Milestone verða dótturfélög Invik, þar með talin íslensku fjármálafyrirtækin Sjóvá, Askar Capital og Avant. KARL WERNERSSON, STJÓRNARFORMAÐUR MILESTONE „Þrátt fyrir erfiðar markaðsaðstæður var rekstur dótturfélaga Milestone í fjármálaþjónustu góður á árinu. Rekstrarniðurstaðan 2007 staðfestir styrk og sveigjanleika fyrirtækisins og Milestone hefur fest sig í sessi sem norræn fjármálasamstæða. Eignir fyrirtækisins hafa meira en tvöfaldast frá 2006 og hagnaður er góður í ljósi talsverðra sveiflna á fjármálamörkuðum. Trú mín á norrænan fjármálamarkað er mikil þrátt fyrir að erfiðleikar hafi steðjað að fjármálafyrirtækjum að undanförnu. Ég er sannfærður um að það mun hafa jákvæð áhrif á Milestone til langs tíma að samþætta starfsemi þess frekar og það mun auðvelda okkur að styrkja stöðu okkar á norrænum fjármálamarkaði.“ GUÐMUNDUR ÓLASON, FORSTJÓRI MILESTONE „Milestone náði góðri fótfestu á norrænum fjármálamarkaði á árinu. Samþætting Milestone og Invik gekk vonum framar auk þess sem samstæða Milestone er nú stærsti hluthafinn í sænska fjárfestingabankanum Carnegie. Áhersla okkar á tryggingastarfsemi, bankarekstur og eignastýringu er mikil og Milestone hefur styrkst verulega á skömmum tíma. Undirliggjandi rekstur dótturfélaga er traustur og efnahagur Milestone endurspeglar áherslu félagsins á fjármálaþjónustu. Meira en 75% af eignum Milestone eru á erlendri grundu og það liggur fyrir að framtíðarvöxtur fyrirtækisins verður á Norðurlöndum. Aukin áhersla á uppbyggingu fjármálafyrirtækja okkar utan Íslands er rökrétt skref fyrir félagið. Vöxtur erlendis eykur áhættudreifingu Milestone og auðveldar okkur að nýta framtíðarsóknarfæri og framfylgja markmiðum félagsins um arðsemi og frekari vöxt.“ UM MILESTONE Milestone er norræn fjármálasamstæða með áherslu á tryggingaekstur, bankastarfsemi og eignastýringu. Innan samstæðunnar eru átta fjármálafyrirtæki í meirihlutaeigu Milestone sem lúta viðeigandi eftirliti á Norðurlöndum og í Lúxemborg. Dregið hefur verulega úr vægi íslenskra fyrirtækja í samstæðu Milestone þar sem 75% af eignum fyrirtækisins eru á erlendri grundu. Á meðal dótturfélaga Milestone eru tryggingafélögin Sjóvá og Moderna, bankarnir Askar Capital og Banque Invik auk eignastýringafélagsins Invik Funds. Frekari upplýsingar um Milestone má nálgast á vefsíðu félagsins, www.milestone.is HORFUR FYRIR ÁRIÐ 2008 Þrátt fyrir erfitt árferði á fjármagnsmörkuðum gera áætlanir félagsins ráð fyrir rekstrarhagnaði á árinu 2008. Stjórn Milestone hefur ákveðið, með fyrirvara um samþykki fjármálaeftirlits í Svíþjóð og á Íslandi, að færa allar íslenskar eignir félagsins undir sænsku fjármálasamstæðuna Invik, sem verður áfram dótturfélag Milestone. Eftir eignafærsluna á árinu 2008 munu öll fyrirtæki Milestone verða dótturfélög Invik, þar með talin íslensku fjármálafyrirtækin Sjóvá, Askar Capital og Avant. Í áætlunum Milestone fyrir árið 2008 er ráðgerð áframhaldandi þróun á eignasafni félagsins á fyrri hluta árs 2008 sem mun meðal annars fela í sér sölu á ýmsum fasteignaverkefnum og hlutum í óskráðum félögum sem eru ekki í fjármálastarfsemi. Á árinu dróg verulega úr áhættu í rekstri Milestone og félagið er vel í stakk búið til að mæta mögulegum óróa á fjármálamarkaði. Þrátt fyrir krefjandi aðstæður á hlutabréfamarkaði þá hefur Milestone mikla trú á fjárfestingum félagsins í skráðu félögunum Glitni og Carnegie og til marks um það hefur Milestone ekki í hyggju að minnka við hlut sinn í félögunum á árinu. NÁNARI UPPLÝSINGAR www.milestone.is www.sjova.is www.invik.se www.askar.is Eða hjá Guðmundi Ólasyni, forstjóra Sími: 414 1800