2007


Ár mikillar uppbyggingar að baki

Helstu niðurstöður:

•  Hreinar vaxtatekjur 0,6 milljarðar króna

•  Þóknanatekjur 1,6 milljarður króna

•  Gjaldfærsla vegna fjárfestinga tengdum undirmálslánum 2,1 milljarðar króna

•  Tap ársins um 0,8 milljarðar króna

•  Heildareignir í árslok 34,3 milljarðar króna samanborið við 15,0 milljarða
   króna í ársbyrjun
 
•  Í árslok 2007 voru engar eignir bókfærðar í efnahagsreikningi sem tengjast
   húsnæðislánum í Bandaríkjunum 

•  Eignir í stýringu 33,0 milljarður króna.

•  Eiginfjárhlutfall á CAD grunni var 18,5% 

DR. TRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON, FORSTJÓRI ASKAR CAPITAL: „Á fyrsta starfsári okkar
höfum við áorkað miklu og við lítum stolt um öxl.  Hreinar vaxta- og
þóknanatekjur námu 2,2 milljörðum króna og er það góður árangur á fyrsta
rekstrarári. Fasteignaráðgjöf bankans gekk mjög vel og jafnframt var mikill
vöxtur í eignaleigustarfsemi hjá dótturfélaginu Avant.  Við stofnun Askar
Capital var mörkuð sú stefna að sinna fjárfestingum og eignastýringu í
sérhæfðum eignum (e. alternative assets). Þar falla m.a. undir fasteigna- og
framtaksverkefni, vogunarsjóðir, fjárfestingar á nýmörkuðum og
skuldabréfavafningar.“ 

Árið 2007 var ár uppbyggingar hjá Askar Capital. Bankinn réð til sín mikið af
hæfu starfsfólki og byggði upp viðskiptasambönd víðs vegar um heiminn. Opnuð
var viðveruskrifstofa á Indlandi og Askar fasteignaráðgjöf opnaði einnig í
Rúmeníu og Bandaríkjunum til viðbótar við skrifstofu sem þegar var starfandi í
Lúxemborg.  Þá var unnið mikið starf í uppbyggingu upplýsingakerfa, húsnæðis
höfuðstöðva og annarra innviða bankans. 

Áhersla félagsins er á fjárfestingar í fasteignum, innviðum (e. infrastructure)
og í framtaksfjármögnunarverkefnum á nýmörkuðum.  Aðstæður á fjármálamörkuðum
heims hafa breyst verulega á síðustu mánuðum. Horfa fjárfestar nú í auknum mæli
til annars konar fjárfestinga en hefðbundinna fjárfestinga í hlutabréfum og
skuldabréfum.  Stefna Askar Capital  fellur vel að þessum umskiptum.
 
Í byrjun ársins fjárfesti Askar Capital í skuldabréfavafningum tengdum lánum á
bandaríska húsnæðismarkaðinum.  Eins og kunnugt hafa aðstæður á bandaríska
húsnæðismarkaðinum breyst mikið til hins verra og hafa fjárfestingar tengdar
honum lækkað verulega í verði.  Vegna þessa var tekin ákvörðun um að gjaldfæra
allar eignir bankans tengdar þessum eignaflokki til að taka af öll tvímæli um
áhættu bankans. Nam gjaldfærslan um 2,1 milljörðum króna. Í lok ársins voru
engar slíkar eignir bókfærðar á efnahagsreikningi félagsins. Ef ekki hefði
komið til þessarar gjaldfærslu næmi hagnaður bankans um 0.9 milljörðum króna. 
Verkefni ársins 2008 eru margvísleg. Nýr framkvæmdastjóri hefur tekið við
rekstri eignastýringarsviðs. Hefur hann víðtæka reynslu af uppbyggingu
eignastýringar á alþjóðlegum vettvangi og eru gerðar miklar væntingar til
þróunar eignastýringar á árinu. Unnið er að uppsetningu á sjóðum fyrir
fagfjárfesta og eru nokkrir þeirra á lokastigi og er hafin sala inn í þá. 
Innra skipulag og starfsemi  bankans verður styrkt auk þess sem unnið er að
breytingum að á fjármagnsskipan í þeim tilgangi að auka jafnvægi í líftíma
eigna og skulda. 

Miklir umbrotatímar eru nú á fjármálamörkuðum en við teljum að með þeirri
stefnu sem Askar Capital hefur markað sér og þeirri uppbyggingu sem þegar hefur
átt sér stað séu tækifærin mikil og þau ætlum við að nýta. 

Nánari upplýsingar veita:
Dr. Tryggvi Þór Herbertsson, forstjóri í síma +354 - 412-8800
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, +354 - 665-8801

Attachments

arsreikningur askar capital 2007 tilk.pdf askar capital financial statements 2007.pdf