Stjórn Teymis hf. hefur samþykkt kaup á 51% hlut í IP fjarskiptum ehf. sem veitir fjarskiptaþjónustu undir vörumerkinu HIVE. Í samningnum felst að dótturfélag Teymis hf., Ódýra símafélagið ehf. (SKO), mun renna inn í IP fjarskipti. Kaupverð hlutanna er trúnaðarmál en áhrif til lækkunar á handbæru fé eru 250 m.kr. Kaupin eru gerð með fyrirvara um afstöðu Samkeppniseftirlitsins. IP fjarskipti (HIVE) bjóða upp á háhraða netþjónustu og netsímalausnir til heimila og fyrirtækja. Ódýra símafélagið (SKO) er lággjaldafjarskiptafyrirtæki sem leggur megináherslu á ódýra farsímaþjónustu. Ætlun sameinaðs félags er að sækja áfram inn á lággjaldamarkaðinn og bjóða neytendum heildarlausnir í fjarskiptum á hagstæðu verði. Áhersla verður lögð á sjálfstæði félagsins og því er ætlað að veita öðrum fjarskiptafyrirtækjum harða samkeppni. Hermann Jónasson verður forstjóri hins sameinaða félags. Hermann Jónasson forstjóri Hive “Sameiningin er eðlilegt framhald af starfi félaganna á undanförnum árum. Hive hefur lengi haft áhuga á að bjóða viðskiptavinum sínum GSM þjónustu á góðum kjörum en ekki haft tækifæri til þess fyrr en nú. Í sameiningunni felast mikil tækifæri fyrir félagið og við ætlum okkur stóra hluti.” Árni Pétur Jónsson, forstjóri Teymis “ Þessi kaup Teymis á ráðandi hlut í Hive er í samræmi við þá stefnu félagsins, að fjárfesta í íslenskum fjarskipta- og upplýsingatæknifyrirtækjum. Með stofnun Sko fyrir tæpum tveimur árum var mörkuð sú stefna að eiga félag sem starfaði á lággjaldahluta fjarskiptamarkaðarinns. Kaup Teymis á meirihluta í sameinuðu félagi Hive og SKO staðfestir þann vilja okkar að styrkja okkur enn frekar á þeim markaði.“ Nánari upplýsingar veita: Árni Pétur Jónsson í síma 693 2200. Hermann Jónasson í síma 821 2072.