2007


Ársreikningur Byggðastofnunar 2007

Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á        
landsbyggðinni. Stofnunin undirbýr, skipuleggur og fjármagnar verkefni og veitir
lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í  
atvinnulífi. Byggðastofnun fylgist einnig með þróun byggðar í landinu og vinnur 
að byggðaáætlun í samvinnu við Iðnaðarráðherra.                                 

Byggðastofnun er með skrifstofu sína á Sauðárkróki.  Í lok tímabilsins störfuðu 
20 starfsmenn hjá stofnuninni.                                                  

Ársreikningur Byggðastofnunar 2007 var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 29.  
febrúar 2008.                                                                   

Tap ársins nam 179.372 þús. kr.                                                 

Hreinar vaxtatekjur námu 221.579 þús. kr. miðað við 38.018 þús. kr. árið 2006.  
Rekstrartekjur námu 376.289 þús. kr. og rekstrargjöld 416.366.  Að meðtölum     
framlögum í afskriftarreikning útlána og niðurfærsla hlutafjár eru heildar      
rekstrargjöld 777.239 þús. kr.  Framlög í afskriftarreikning útlána og niðurfært
hlutafé nam 360.873 þús. kr.  Tap ársins nam því 179.372 þús. kr. miðað við     
10.103 þús. kr. hagnað árið 2006.                                               

Til þess að styrkja eiginfjárstöðu Byggðastofnunar, samþykkti Alþingi Í lok árs 
2007, 1.200.000 þús. kr. framlag til stofnunarinnar.                            

Eigið fé Byggðastofnunar nam 2.072.520 þús. kr. eða 16,02% af niðurstöðu        
efnahagsreiknings og hefur hækkað úr 1.051.892 þús. kr.  Eiginfjárhlutfall      
stofnunarinnar samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 14,15%.  Samkvæmt ákvæðum 
laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki skal eigið fé lánastofnunar á hverjum    
tíma eigi nema lægri fjárhæð en sem svara 8% af áhættugrunni.                   

Varanlegir rekstrarfjármunir Byggðastofnunar voru 2,70% af eigin fé.            

Eignir Byggðastofnunar í lok árs 2007 námu 12.937.462 þús. kr., þar af námu     
útlán 9.496.939 þús. kr. og hafa hækkað um 20.831 þús. kr. frá lok árs 2006.    

Skuldir Byggðastofnunar námu 10.864.942 þús. kr. og hafa lækkað um 288.164 þús. 
kr. frá árinu 2006.                                                             

Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings voru um áramótin 317.357 þús. kr.

Attachments

lykiltolur_me_arsreikningi_31.12.2007.pdf arsreikningur_2007.pdf