- P/F Föroya Banki verður viðurkenndur ráðgjafi (CA) á First North


OMX Nordic Exchange Iceland hf. hefur samþykkt að P/F Föroya Banki verði
viðurkenndur ráðgjafi (e. Certified Adviser, CA) á First North Iceland.
Hlutverk CA felst í að vera félagi til ráðgjafar og aðstoðar þegar
skráningarferlið stendur yfir og vera ráðgjafi og milliliður í samskiptum við
markaðinn meðan bréf félags eru til viðskipta á markaðnum. CA fyrirkomulagið er
hannað til að byggja traustan markað því það er á ábyrgð CA að fylgjast með því
að félög uppfylli ávallt þær aðgangskröfur og upplýsingaskyldur sem gilda á
First North. 

Til að gerast Certified Adviser á First North þurfa fyrirtæki að uppfylla
ákveðin skilyrði.  Þau helstu eru að CA þarf að: 
- vera lögaðili. 
- hafa nægilega marga starfsmenn. 
- tryggja að starfsmenn Certified Adviser séu hæfir og búi yfir nægilegri
  reynslu í  fjármálaþjónustu við fyrirtæki. 
- setja innri reglur um viðskipti með hlut í félögum sem þiggur þjónustu
  Certified Adviser. 
- hafa verklag og vinnureglur um skráningu gagna og geymslu upplýsinga.

First North býður P/F Föroya Banki velkominn til starfa sem Certified Adviser.