- 2007


Góð afkoma af rekstri Fljótsdalshéraðs á árinu 2007.

Í dag, 19. mars verður ársreikningur Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2007 lagður
fram í bæjarstjórn til fyrri umræðu.  Rekstarafkoma ársins varð mun betri en
fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir sem skýrist að mestu af lengri framkvæmdatíma
við Kárahnjúkavirkjun og þar af leiðandi urðu skattgreiðslur íbúa
virkjunarsvæðisins hærri en ætlað var í forsendum fjárhagsáætlunar fyrir árið
2007. 

Fljótsdalshérað var rekið með 189,6 millj. kr. rekstrarafgangi á árinu 2007
samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A og B hluta stofnanir
sveitarfélagsins. Afkoma A-hluta var jákvæð sem nemur 173,7 millj. kr.  Fyrir
fjármagnsliði var rekstrarniðurstaða A og B hluta jákvæð um 370 millj.kr. á
móti 304 millj. kr. í A hluta. 

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 2.436 millj. kr. samkvæmt
samanteknum ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A
hluta 2.135 millj. kr. 

Rekstrargjöld fyrir fjármagnsliði námu alls 2.066 millj. kr. í samanteknum
ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af voru rekstrargjöld A hluta 1.831
millj. kr. 

Veltufé frá rekstri nam 505 millj kr. hjá samstæðu A og B hluta, þar af  er
veltufé frá rekstri í A hluta um 388 millj. kr. 

Fjárfestingahreyfingar ársins námu nettó 193 millj. kr. hjá samstæðu A og B
hluta, en voru jákvæðar um 11 millj. í A hluta. 

Lántökur námu 94 millj. kr. sem eru eingöngu hjá B hlutafyrirtækjum.  Engar
lántökur voru í A hluta. 
 
Afborganir lána skv. ársreikningi  samantekins A og B hluta námu samtals um 206
millj. kr.,  þar af 143 millj. kr. hjá A hluta. 

Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2007 nam 1.689 millj. kr. samkvæmt
efnahagsreikningi, en þar af nam eigið fé A hluta 1.462 millj. kr.
Eiginfjárhlutfall hækkar milli ársloka 2006 og 2007 úr 33% í 39% og í A hluta
úr 38% í 46%. 

Þann 1. desember 2007 voru íbúar Fljótsdalshéraðs 4.073og fækkað um 12,3% á
árinu sem skýrist af fækkun íbúa á virkjunarsvæði Kárahnjúkavirkjunar. Skuldir
og skuldbindingar á íbúa í A hluta sveitarsjóðs hækkuðu á árinu um 32 þús. kr.
og voru í árslok 419 þús. kr. sem skýrist af fækkun íbúa enda engar nýjar
lántökur hjá A- hluta á árinu  á meðan eignir hækkuðu um 152 þús. kr. á íbúa og
námu 777 þús. kr. á íbúa. 

Beitt er sömu reikningsskilaaðferðum og á árinu 2006.

Ársreikningur 2007 verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn
Fljótsdalshéraðs þann 19. mars 2008 og síðan til samþykktar í seinni umræðu
þann 2. apríl og mun þá birtur í heild sinni á heimasíðu Fljótsdalshéraðs.

Attachments

frettatilkynning 2007 - fljotsdalshera.pdf arsreikningur fljotsdalsheras 2007.pdf