Fitch breytir horfum vegna lánshæfismats Kaupþings, Glitnis og Landsbanka í neikvæðar



Lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings tilkynnti í dag að það hafi
breytt horfum vegna langtíma- og skammtímaeinkunna (e. Long- and
Short-term Issuer Default ratings), einkunna vegna almennra og
víkjandi lána (e. senior and subordinated debt ratings) og óháðra
einkunna (e. Individual ratings), hjá Kaupþingi banka, Glitni banka
og Landsbanka Íslands í neikvæðar (e. Rating Watch Negative).
Stuðningseinkunnir "2", stuðningseinkunnargólf "BBB" hafa verið
staðfestar.

Þótt Fitch telji að lausafé bankanna þriggja sé nú fullnægjandi, þá
hafi minnkandi traust á geiranum aukið hættu á ófyrirséðri minnkun á
lausafé og takmarkað verulega möguleika til fjármögnunar. Jafnframt
muni skörp lækkun krónunnar og aukin hætta á "harðri lendingu" í
hagkerfinu líklega minnka gæði eigna og hafa neikvæð áhrif á
rekstrarárangur.

Engu að síður telur Fitch að grunnrekstur bankanna þriggja sé áfram
traustur. Lausafé virðist nægt og bankarnir geti starfað án þess að
sækja fé á fjármagnsmarkaði á næstu mánuðum.

Frekari upplýsingar veita
Guðni Aðalsteinsson - framkvæmdastjóri Fjárstýringar - 444-6126
Jónas Sigurgeirsson - framkvæmdastjóri Samskiptasviðs - 444-6112

Attachments

Fitch frettatilkynning 1. april 2008