Bakkavör Group birtir afkomu fyrsta ársfjórðungs 2008, mánudaginn 28. apríl nk. - ATHUGIÐ BREYTTA DAGSETNINGU Á BIRTINGU UPPGJÖRS


Bakkavör Group mun birta afkomu sína fyrir fyrsta ársfjórðung 2008 mánudaginn
28. apríl nk. eftir lokun markaða. Athygli er vakin á að um er að ræða breytta
dagsetningu frá áður auglýstu birtingardagatali.
 
Kynningarfundur þriðjudaginn 29. apríl kl. 8:30

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn þriðjudaginn 29.
apríl kl. 08:30 að íslenskum tíma í Ármúla 3, 108 Reykjavík. Á fundinum mun
Ágúst Guðmundsson, forstjóri Bakkavör Group, skýra uppgjörið og svara
fyrirspurnum. 

Netvarp og símafundur

Fundinum verður varpað á netinu á www.bakkavor.com og hefst útsendingin kl.
08:30 að íslenskum tíma. Einnig er hægt að fylgjast með fundinum í síma 800
8660 og +44 (0)20 3043 2436 (breskt númer). 

Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á
heimasíðu félagsins, www.bakkavor.com