Kaupþing og SPRON hefja sameiningarviðræður


Kaupþing banki hf. (“Kaupþing”) og SPRON hf.(“SPRON”) hafa ákveðið að taka upp
viðræður um mögulega sameiningu félaganna. Gert er ráð fyrir að viðræðunum
verði lokið á um 4 vikum. 

Sameining félaganna er háð samþykki hluthafafundar SPRON, stjórnar Kaupþings,
Fjármálaeftirlitsins, Samkeppniseftirlitsins og lánveitenda félaganna. 

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON, í síma 550-1213.