- Afkoma Kaupþings banka hf. á fyrsta ársfjórðungi 2008



Hagnaður eftir skatta 18,7 milljarðar króna
 
- Hagnaður hluthafa eftir skatta 18,7 ma.kr samanborið við 20,3
ma.kr. á sama tímabili í fyrra
- Arðsemi eigin fjár á fyrsta ársfjórðungi var 23,7% á ársgrundvelli
- Hagnaður á hlut var 26,1 kr. - samanborið við 27,4 kr. á sama
tímabili í fyrra
- Hreinar vaxtatekjur jukust um 31,2% miðað við sama tímabil í fyrra
- Hreinar þóknanatekjur drógust saman um 11,3% miðað við sama tímabil
í fyrra
- Gengishagnaður nam 9,7 m.kr. og dróst saman um 28,0% miðað við sama
tímabil í fyrra
- Rekstrarkostnaður bankans nam 21,6 ma.kr. á fyrsta ársfjórðungi -
jókst um 21,8% frá fyrsta ársfjórðungi 2007 en lækkar um 17,0% mælt í
evrum frá fjórða ársfjórðungi 2007.
- Kostnaðarhlutfall á ársfjórðungnum var 47,0%
- 29,6% gengislækkun krónunnar á fyrsta ársfjórðungi 2008 hefur
veruleg áhrif á uppgjör bankans og allan samanburð milli tímabila
- Heildareignir námu 6.368,4 milljörðum króna í lok mars og drógust
saman um 8,7% í evrum frá áramótum, en jukust um 19,1% í íslenskum
krónum
- Eiginfjárhlutfall samkvæmt CAD reglum helst áfram hátt 11,4% -
Eiginfjárþáttur A var 9,1%
- Frá árinu 2005 hefur Kaupþing verið með misvægi í gengisjöfnuði til
að verja eiginfjár hlutföll bankans gagnvart lækkun gengis krónunnar.
Lækkunin á fyrsta ársfjórðungi 2008 leiðir til 72,5 milljarða króna
hækkunar á eigin fé
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri"Þetta er vel viðunandi uppgjör í ljósi erfiðra aðstæðna á
alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Uppgjörið sýnir getu bankans til að
bregðast hratt við breyttum markaðsaðstæðum. Rekstrarkostnaður lækkar
verulega á milli ársfjórðunga og sú þróun mun halda áfram.
Efnahagsreikningur bankans minnkaði um 9% í evrum á fjórðungnum sem
eru viðbrögð bankans við markaðsaðstæðum. Almenn gæði eigna bankans
eru góð þrátt fyrir að afskriftir aukist milli ársfjórðunga. Í
núverandi markaðsumhverfi er sérlega mikilvægt að tekist hefur að
verja sterka lausafjárstöðu bankans og verður það sem fyrr
höfuðmarkmið stjórnenda. Við erum undir það búin að núverandi ástand
á mörkuðum geti varað í töluvert langan tíma en teljum verkefnastöðu
og horfur viðunandi þrátt fyrir það."
 
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um uppgjörið veita Ólöf Hildur Pálsdóttir,
Fjárfestatengslum, í síma 444-6569 (ir@kaupthing.com) og Fríða
Filipina Fatalla, Fjárfestatenglum, í síma 444-6192. Upplýsingar um
Kaupþing er einnig hægt að nálgast á heimasíðum bankans
www.kaupthing.is og www.kaupthing.com

Attachments

Frettatilkynning pdf Arshlutareikningur pdf