- FL Group hyggst sækja um skráningu úr kauphöll OMX


- Stjórn félagins telur að afskráning félagsins þjóni hagsmunum félagsins og
hluthöfum þess best 

- Hluthafar eiga kost á að halda hlutum sínum í FL Group eða selja þá fyrir
hluti í Glitni banka 


Reykjavík, 1. maí 2008: Stjórn FL Group hefur samþykkt að boða til
hluthafafundar þann 9. maí næstkomandi og leggja fyrir hluthafa félagsins
tillögu um skráningu félagsins úr kauphöll OMX Nordic Exchange á Íslandi
(“OMX”). Að fengnu samþykki hluthafafundar mun FL Group gera hluthöfum tilboð
um að kaupa hluti þeirra í FL Group og greiða fyrir þá með hlutum í Glitni. Um
83% hluthafa félagins hafa þegar afsalað sér rétti til tilboðsins og verða því
áfram hluthafar í FL Group. 

Stjórn FL Group telur að skráning félagsins úr kauphöll OMX þjóni hagsmunum
félagsins og hluthöfum þess best og veiti stjórnendum félagsins færi á að
leggja frekari áherslu á langtímamarkmið. Síðustu mánuði hefur farið fram
gagnger endurskoðun á fjárfestingastefnu og rekstri FL Group en félagið leggur
nú áherslu á stöðugar langtímafjárfestingar og fjárfestingar í óskráðum
félögum. Afskráning mun veita framkvæmda¬stjórn félagsins sveigjanleika til að
horfa til lengri tíma í uppbyggingu félagsins og minnka kostnað og umsvif sem
fylgja því að vera skráð félag. 

Afskráningarferli
Samþykki 2/3 hluthafa þarf til þess að afskráningarferlið geti hafist. Að
fengnu samþykki hluthafafundar þann 9. maí mun hluthöfum standa til boða að
halda hlutum sínum í FL Group sem verður óskráð félag eða selja hluti sína í FL
Group og fá greitt fyrir með hlutum í Glitni banka. Um 83% hluthafa FL Group
hafa þegar afsalað sér rétti til selja bréf sín í skiptum fyrir bréf í Glitni
og munu því verða áfram hluthafar í FL Group. 

Kaupverð hluta í FL Group í tilboði til hluthafa verður 6,68 á hlut sem var
meðalgengi FL Group í aprílmánuði 2008 og gengi á hlutum í Glitni verður 17,05
á hlut sem var lokagengi Glitnis þann 30. apríl 2008. Skiptihlutfallið í
tilboði til hluthafa verður því 0,3918 hlutir í Glitni banka fyrir hvern hlut í
FL Group. 

FL Group hefur gert samkomulag við Jötunn Holding ehf. um rétt FL Group til
kaupa á hlutum Jötuns í Glitni sem nota skal í viðskiptunum. Þessi viðskipti
hafa því engin áhrif á 31,97% eignarhlut FL Group í Glitni eða stöðu Glitnis
sem einni af kjarnafjárfestingum FL Group. 

Hluthöfum, sem skráðir eru í hluthafaskrá félagsins í lok dags 8. maí, gefst
færi á að skipta á bréfum sín í FL Group fyrir bréf í Glitni á tímabilinu frá
9. maí til kl. 16.00 þann 21. maí 2008. Stefnt er að því að ljúka
afskráningarferlinu sem fyrst í kjölfar þess að tilboðið rennur út. Glitnir
banki hefur umsjón með viðskiptunum og eftir 9. maí geta hluthafar fengið
frekari upplýsingar og aðstoð í síma 440 3725 og á vefsíðu bankans,
www.glitnir.is. 

 
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður FL Group:
„Afskráning FL Group mun veita stjórnendum félagsins tækifæri til að leggja
meiri áherslu á langtímamarkmið og minnkar einnig áhrif vegna skammtímamarkmiða
sem tengjast hlutabréfamarkaði. Sú staðreynd að um 83% hluthafa félagsins hafa
þegar ákveðið að halda hlut sínum í FL Group að afskráningu lokinni sýnir vel
þá trú sem þessir aðilar hafa á FL Group, stefnu stjórnar og
framkvæmdastjórnar. Þeir hluthafar sem kjósa fremur að eiga hlut í skráðu
félagi hafa möguleika á að fjárfesta í Glitni, einni af kjarnafjárfestingum FL
Group, sem við getum óhikað mælt með.“ 

Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group:
„Síðastliðna mánuði hefur verið unnið markvisst að endurskipulagningu
fjárfestingasafns og reksturs FL Group, með það markmið að styrkja
fjárhagsstöðu félagsins og veita því stöðugleika. Skráning félagsins af markaði
er rökrétt skref í áframhaldandi endurskipulagningu félagsins. Við teljum að
sem óskráð félag muni FL Group fá aukið svigrúm og fleiri tækifæri til að efla
rekstur félagsins og kjarnafjárfestingar félagsins á banka-, trygginga- og
fasteignamarkaði ásamt því að styðja við fjárfestingaverkefni í óskráðum
félögum.“ 

Frekari upplýsingar veitir:
Júlíus Þorfinnsson
Forstöðumaður samskiptasviðs FL Group
Sími: 591 4400
julius@flgroup.is


Um FL Group:
FL Group er alþjóðlegt fjárfestingafélag með kjarnafjárfestingar í bönkum,
trygginga- og fasteignafélögum auk fjölmargra fjárfestingaverkefna í óskráðum
félögum. Meðal stærstu fjárfestinga FL Group eru 32% hlutur í Glitni banka, 99%
hlutur í Tryggingamiðstöðinni og 39,8% hlutur í Landic Property. 
   
Höfuðstöðvar FL Group eru í Reykjavík en félagið er einnig með skrifstofur í
Lundúnum. FL Group er skráð á OMX Nordic Exchange í Reykjavík (OMX: FL) og
hluthafar félagsins eru rúmlega 4.300 talsins. 
  
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu FL Group, www.flgroup.is.